11. júní 2026

Vorfundur ENOC í Osló

Salvör Nordal, umboðsmaður barna, Sigurveig Þórhallsdóttir og Sólveig Auður Bergmann lögfræðingar, tóku þátt á vorfundi ENOC í Osló, fyrir hönd embættisins.

Í vikunni var árlegur vorfundur umboðsmanna barna í Evrópu haldin í Osló, Noregi. Þema fundarins í ár voru réttindi LGBTQIA+ barna og ungmenna og barnvæn réttarvarsla. Þá var einnig rætt um rétt barna til verndar í stafrænu umhverfi. 

Umboðsmaður barna sótti ráðstefnuna ásamt öðrum umboðsmönnum barna í Evrópu og tók þátt í fyrirlestrum og umræðum. Þar sköpuðust áhugaverðar umræður, en samráð milli landa er mikilvægur vettvangur fyrir umboðsmenn barna til að deila reynslu sinni og vinna að úrbótum.

Sigurveig Þórhallsdóttir, kynnti skýrslu embættisins um barnvæna réttarvörslu en embættið vann að úttekt og greiningu á íslensku réttarkerfi út frá hugmyndafræði barnvænnar réttarvörslu árið 2024. Skýrslan var kynnt 26. mars 2025 og má nálgast hér.

Sigurveigenoc

Sigurveig kynnir niðurstöður skýrslu um barnvæna réttarvörslu


Hafðu samband

Póstlisti


Þetta vefsvæði byggir á Eplica