2. júlí 2026

Vísindaskólinn á Akureyri

Í síðustu viku dvaldi Salvör Nordal, umboðsmaður barna og Nanna Birgisdóttir, starfsmaður embættisins, á Akureyri.

Á meðan á dvölinni stóð kenndu þær í Vísindaskóla unga fólksins um réttindi barna og hlutverk umboðsmanns. Kennslan fór fram í Háskólanum á Akureyri. Vísindaskólinn er glæsilegt verkefni og gaman að hitta þessa áhugasömu krakka.

Á meðan á dvölinni á stóð var tíminn nýttur til margvíslegra funda, má þar nefna fund með sviðsstjóra velferðarsviðs Akureyrarbæjar, sveitastjóra og starfsfólki Dalvíkurbyggðar, og skólameistara Menntaskólans á Akureyri. Fjölskylduhús, nýtt úrræði á vegum Akureyrarbæjar var skoðað en þar verður meðal annars tekið utan um börn sem glíma við skólaforðun, forvörnum sinnt og fjölskyldum sem þurfa sérstakan stuðning. Hér fyrir neðan eru myndir úr viðburðarríkri ferð. 

727124237_888516333811705_8775802900381573339_n

736007699_26344404515235368_7068328268496586035_n

736988349_1554396679626964_2364788165406091569_n


Hafðu samband

Póstlisti


Þetta vefsvæði byggir á Eplica