22. janúar 2022

Villandi upplýsingar í dreifingu

Af gefnu tilefni skal tekið fram að upplýsingablað sem verið er að dreifa í heimahús og vefsíða sem fram er sett í nafni ”Bólusetningaráðs” er ekki á vegum embættis umboðsmanns barna né annarra opinberra aðila. 

Þá skal tekið fram að þær upplýsingar sem þar eru settar fram eru villandi, enda verið að gefa í skyn að embætti umboðsmanns barna standi að baki, sem er alrangt. 

Ekki er vitað hverjir standa að baki vefsíðunni og hvergi er tilgreint hver er ábyrgðarmaður fyrir henni. Að mati umboðsmanns barna er það grafalvarlegt að verið sé að dreifa villandi og röngum upplýsingum í skjóli nafnleyndar sem varða jafn mikilvæg og viðkvæm málefni og um ræðir.

Ekki er vitað hverjir standa að baki vefsíðunni.


Hafðu samband

Póstlisti


Þetta vefsvæði byggir á Eplica