Vettvangsheimsókn umboðsmanns barna á Akranes
Umboðsmaður barna heimsótti í vikunni Grundaskóla á Akranesi og bæjarskrifstofu Akraneskaupstaðar
Heimsóknin hófst á fundi með nemendaráði grunnskólans Grundaskóla, en ráðið hafði sent erindi á umboðsmanns barna í febrúar. Umboðsmaður barna ræddi við nemendaráðið um erindið og önnur mál sem brunnu þeim á hjarta. Fundurinn var virkilega góður og gaman að sjá hversu öflugt nemendaráðið í Grundaskóla er. Í kjölfarið sýndu nemendur og skólastjóri Grundaskóla, Sigurður Arnar Sigurðsson, starfsfólki embættisins um skólann og kynntu starfsemina. Þá átti starfsfólk umboðsmanns barna hádegisfund með Sigurði.
Eftir hádegi fór starfsfólk embættisins á fund með Dagnýju Hauksdóttur, sviðsstjóra mennta- og menningarsviðs, og Hildigunni Árnadóttur, sviðsstjóra velferðar- og mannréttindasviðs, á bæjarskrifstofu Akranes.
Heimsóknin á Akranes var virkilega fræðandi og ánægjuleg. Við hjá umboðsmanni barna þökkum kærlega fyrir góðar móttökur á Akranesi.


