26. apríl 2011

Vel heppnað þing ungmenna um stjórnarskrána

Laugardaginn 16. apríl sl. var haldið þing ungmenna undir yfirskriftinni Stjórnlög unga fólksins. Markmiðið var að leyfa rödd barna og ungmenna að heyrast við endurskoðun stjórnarskrárinnar.

Laugardaginn 16. apríl sl. var haldið þing ungmenna undir yfirskriftinni Stjórnlög unga fólksins. Markmiðið var að leyfa rödd barna og ungmenna að heyrast við endurskoðun stjórnarskrárinnar.

Stjórnlög unga fólksins er sameiginlegt verkefni umboðsmanns barna, Unicef og Reykjavíkurborgar. Á vef verkefnisins, www.stjornlogungafolksins.is, er að finna sex myndbönd sem fjalla um efni stjórnarskrárinnar á skemmtilegan og nýstárlega hátt. Á vefnum er líka hægt að nálgast kennsluleiðbeiningar, orðskýringar og sérstök vefsvæði þar sem unglingar um allt land geta sett fram sínar skoðanir á efni og endurskoðun stjórnarskrárinnar.

Þátttakendur á þinginu voru rúmlega fjörutíu og komu þeir frá ungmennaráðum sveitarfélaga víðs vegar af landinu. Á þinginu voru ræddar ýmsar spurningar varðandi hlutverk þjóðhöfðingja, mörk framkvæmdar- og löggjafarvalds, dómsvald, mannréttindaákvæðin auk þess sem unglingarnir höfðu sjálfir frumkvæðið að ýmsum umræðuefnum. Umræðurnar voru mjög líflegar og unglingarnir höfðu sterkar skoðanir á ýmsum grundvallaratriðum.

Niðurstöður þingsins verða teknar saman í skýrslu sem birt verður á næstunni og afhent Stjórnlagaráði og Alþingi.

 

 


Hafðu samband

Póstlisti


Þetta vefsvæði byggir á Eplica