11. október 2018

Vegna vistunar barns í fangaklefa

Í annað skipti á árinu berast fréttir í fjölmiðlum um að barn sem glímir við alvarlegan fíknivanda sé vistað í fangaklefa lögreglunnar þar sem ekki voru til staðar viðeigandi úrræði. Umboðsmaður barna lítur málið afar alvarlegum augum og skorar á stjórnvöld að tryggja börnum þá vernd og ummönnun sem velferð þeirra krefst.

Í annað skipti á árinu berast fréttir í fjölmiðlum um að barn sem glímir við alvarlegan fíknivanda sé vistað í fangaklefa lögreglunnar þar sem ekki voru til staðar viðeigandi úrræði. (sjá frétt frá mbl.is 10. október 2018 og frétt visir.is 4. apríl 2018 ) Umboðsmaður barna ítrekar fyrra álit að vistun barna í fangaklefum sé algjörlega óásættanleg ráðstöfun og ekki í samræmi við meginreglur Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna .  Í fyrra skiptið var umboðsmanni barna tjáð að afar sérstakar aðstæður hefðu valdið því að gripið hafi verið til þessa ráðs en nú þegar gripið er aftur til þessa ráðs nokkrum mánuðum síðar er ljóst að stjórnvöld verða að bregðast strax við og tryggja með öllum ráðum að ekki komi til þeirra aftur.  

 Umboðsmaður barna lítur málið afar alvarlegum augum og skorar á stjórnvöld að tryggja börnum þá vernd og umönnun sem velferð þeirra krefst. Það langvarandi úrræðaleysi sem ríkir í málefnum barna með alvarlegan fíknivanda eða barna með tví- eða fjölþættan vanda sem þurfa þjónustu frá barnaverndar og heilbrigðiskerfinu hér á landi er óviðunandi með öllu. Á meðan ekki hefur fundist varanlegt úrræði til að mæta vanda þessara barna er ljóst að grípa þarf til annarra úrræða til bráðabirgða sem koma í veg fyrir að slíkt neyðarástand skapist að barn sé sett í fangaklefa. Stjórnvöldum er skylt að setja hagsmuni barna í forgang, sbr. meðal annars 3. gr. Barnasáttmálans, og tryggja öllum börnum þá þjónustu sem þau eiga rétt á.

 

Mynd af ungmenni við bryggju eftir Benjamin Suomela / Norden.org

Benjamin Suomela / Norden.org


Hafðu samband

Póstlisti


Þetta vefsvæði byggir á Eplica