24. ágúst 2022

Vegir sem þjóna skólaakstri

Í kjölfar ábendinga um ástand vegar sem þjónar meðal annars skólaakstri sendi embættið bréf til Sigurðar Inga Jóhannssonar, innviðaráðherra.

Umboðsmaður barna hefur fengið ábendingar um bágt ástand á Vatnsnesvegi (711) þar sem börn í Húnaþingi vestra ferðast nær daglega með skólabíl. Í kjölfar þeirra ábendinga sendi embættið bréf til Sigurðar Inga Jóhannssonar, innviðaráðherra þar sem meðal annars er bent á mikilvægi þess að stjórnvöld forgangsraði fjármagni til verkefna sem varða réttindi og hagsmuni barna með beinum hætti. 


Hafðu samband

Póstlisti


Þetta vefsvæði byggir á Eplica