3. júní 2026

Varðandi frumvarp um brottfararstöð

Fyrir Alþingi liggur nú frumvarp um brottfararstöð þar sem heimilt verður að vista útlendinga þar á meðal fjölskyldur með börn, að ákveðnum skilyrðum uppfylltum.

Málið gekk til allsherjar- og menntamálanefndar þann 11. nóvember 2025 og umboðsmaður barna sendi nefndinni umsögn vegna frumvarpsins 4. desember 2025. Í umsögn umboðsmanns barna kemur skýrt fram að það sé mat embættisins að sú framkvæmd að frelsissvipta börn á grundvelli innflytjendastöðu þeirra eða foreldra þeirra samræmist ekki réttindum barna og ákvæðum Barnasáttmálans. Mati sínu til rökstuðnings vísar umboðsmaður til afdráttarlausrar afstöðu barnaréttarnefndar Sameinuðu þjóðanna sem fram kemur í sameiginlegri almennri athugasemd barnaréttarnefndarinnar og nefndar um réttindi farandverkafólks og fjölskyldna þeirra frá 2017 og yfirlýsingar umboðsmanna barna í Evrópu (ENOC) frá 2019.

Þann 29. maí sl. birti meiri hluti allsherjar- og menntamálanefndar nefndarálit með breytingartillögum og af því tilefni telur umboðsmaður barna rétt að árétta afstöðu embættisins gagnvart frelsissviptingu barna á grundvelli innflytjendastöðu. Í áliti meiri hlutans er lagt til að fjölskyldur með börn verði aðeins vistaðar í húsnæði sem verður aðskilið öðrum vistarverum fyrir einstaklinga. Áður hafði verið gert ráð fyrir að vistarverur fyrir börn og fjölskyldur væru aðskildar frá öðrum en ekki kom fram að það þyrfti að vera í sérstöku húsnæði. Breytingar þær sem lagðar eru til í nefndarálitinu hafa ekki breytt afstöðu umboðsmanns barna enda er enn um að ræða frelsissviptingu barna á grundvelli innflytjendastöðu.

Vegna umfjöllunar í nefndaráliti meiri hlutans um 37. gr. Barnasáttmálans telur umboðsmaður jafnframt rétt að taka fram að hér er til umræðu frelsissvipting barna á grundvelli innflytjendastöðu en ekki frelsissvipting barna almennt. Börn kunna í ákveðnum tilvikum að sæta frelsissviptingu, t.d. þegar sakhæf börn hafa hlotið óskilorðsbundinn fangelsisdóm.[1] Við mat á því hvort frelsissvipting barna samræmist ákvæðum Barnasáttmálans skiptir verulegu máli á hvaða lagagrundvelli og í hvaða tilgangi barn er svipt frelsi. Í áðurnefndri athugasemd barnaréttarnefndarinnar er sérstaklega fjallað um frelsissviptingu barna í tengslum við innflytjendamál. Þar kemur fram að þótt 37. gr. b Barnasáttmálans mæli fyrir um að barn megi aðeins svipta frelsi sem síðasta úrræði og í eins skamman tíma og unnt er, eigi sú regla ekki við um frelsissviptingu á grundvelli innflytjendastöðu. Bent er á að innflytjendastaða barns og fjölskyldu þess geti ekki réttlæt frelsissviptingu á sama hátt og kann að eiga við innan refsivörslukerfisins. Þá kemur fram að frelsissvipting barna í tengslum við innflytjendamál samrýmist hvorki meginreglunni um bestu hagsmuni barnsins né rétti þess til þroska. Jafnframt er áréttað að barnaréttarnefndin líti svo á að meginreglan um að aðskilja barn ekki frá fjölskyldu sinni geti ekki verið notuð sem rök fyrir frelsissviptingu barna í innflytjendamálum. Þvert á móti leiði hún til þess að stjórnvöldum beri að finna önnur úrræði sem gera fjölskyldunni kleift að vera saman án frelsissviptingar.

Í frumvarpinu um brottfararstöð og nefndaráliti meiri hluta allsherjar- og menntamálanefndar er sérstaklega fjallað um 1. mgr. 3. gr. Barnasáttmálans sem kveður á um að það sem barni er fyrir bestu skuli ávallt hafa forgang þegar taka á ákvarðanir eða gera á ráðstafanir sem varða börn. Þrátt fyrir þessa umræðu um 1. mgr. 3. gr. Barnasáttmálans var ekki lagt mat á áhrif frumvarpsins á börn en það hefði átt að gera skv. 1. mgr. 3. gr. sáttmálans. Til þess að vita hvað sé barni fyrir bestu þarf að framkvæma formlegt mat á áhrifum á börn.

Að þessu virtu áréttar umboðsmaður barna fyrri afstöðu sína, að frelsissvipting barns vegna innflytjendastöðu þess eða foreldra þess samræmist ekki réttindum barna og ákvæðum Barnasáttmálans. Þá er það afstaða umboðsmanns barna að hvers konar frelsissvipting barns á grundvelli innflytjendastöðu eigi að vera bönnuð með lögum.


[1] Rétt er að taka fram að börn afplána almennt óskilorðsbundna dóma í úrræði á vegum Barna- og fjölskyldustofu en ekki í almennum fangelsum.


Hafðu samband

Póstlisti


Þetta vefsvæði byggir á Eplica