18. apríl 2014

Ungt fólk og lýðræði - Ályktun

Ráðstefnan Ungt fólk og lýðræði, haldin á Ísafirði 9.-11.apríl 2014, skorar á stjórnvöld, jafnt ríki sem sveitarfélög að leita meira til ungmenna og taka tillit til þeirra skoðana á málefnum samfélagsins, einkum þeim er varða ungmennin sjálf.

Ungt Folk Og Lydraedi 2014 2 Dagana 9.-11.apríl sl. var ráðstefnan Ungt fólk og lýðræði haldin í fimmta sinn og nú á Ísafirði. Þema ráðstefnunnar að þessu sinni var „stjórnsýslan og við – áhrif ungs fólks á stjórnsýsluna.“ Þema ráðstefnunnar er mikilvæg ungu fólki sem mörg hver eru að ganga til kosninga í vor í fyrsta skipti.

Ungmennafélag Íslands hefur ávallt lagt áherslu á lýðræðislega þátttöku ungs fólks og hefur ráðstefnan ávallt vakið mikla lukku meðal þátttakenda. Að þessu sinni sóttu sjötíu einstaklingar ráðstefnuna, bæði ungmenni sem starfa í ungmennaráðum víðsvegar um landið og starfsmenn sem sjá um málefni ungmenna í sínu sveitafélagi. Ungmennaráð UMFÍ hafði veg og vanda af ráðstefnunni sem þótti takast með miklum ágætum enda jafningjafræðsla í hávegum höfð. 

Til stóð að Margrét María Sigurðardóttir umboðsmaður barna mætti á ráðstefnuna og hitti ungmenni í Bolungarvík í leiðinni. Því miður varð ekkert úr þessari ferð vegna veðurs.

Umboðsmaður barna vill samt vekja athygli á meðfylgjandi ályktun sem unnin var af þátttakendum með lýðræðislegum vinnubrögðum. Ungmennaþing fór fram seinni daginn á ráðstefnunni eftir vinnustofur fyrri daginn. Á þinginu sköpuðust líflegar umræður um hverja ályktun fyrir sig sem að lokum varð að heildar ályktun sem samþykkt var einróma af ráðstefnugestum.

Ályktunin sem birt er hér á vef UMFÍ er svohljóðandi:

Ráðstefnan Ungt fólk og lýðræði, haldin á Ísafirði 9.-11.apríl 2014, skorar á stjórnvöld, jafnt ríki sem sveitarfélög að leita meira til ungmenna og taka tillit til þeirra skoðana á málefnum samfélagsins, einkum þeim er varða ungmennin sjálf.

Við teljum að ungt fólk sé nægilega þroskað til þess að geta myndað sér skoðun sem vert er að taka mark á. Við teljum að mikilvægt sé að hlusta á skoðanir ungs fólks á meðan þær eru ómótaðar og frjálslegar, enda koma þau oft með áhugaverðar hugmyndir sem fara út fyrir hefðbundna hugsun.

Við viðjum efla upplýsingaflæði milli allra aldurshópa.

Við hvetjum öll ungmenni til þess að stíga fram og sýna áhuga á málefnum líðandi stundar til þess að auka virðingu og traust til ungmenna um allt land.

Við teljum nauðsynlegt að efla gagnrýna hugsun og sköpunargleði nemenda í skólum landsins.

Við viljum að ungmenni fái að taka virkan þátt í skipulagningu almenningssamgangna í okkar nærumhverfi. Samgöngumál eru hagsmunamál ungs fólks þar sem þau hafa áhrif á atvinnutækifæri, námsmöguleika og annað starf ungs fólks. Góðar samgöngur eru forsenda þess að ungt fólk geti stundað íþróttir og tómstundir óháð búsetu.

Við viljum að jafnréttis- og kynjafræði verði hluti af grunn- og framhaldsskólanámi á Íslandi.

Við viljum fræðslu um fjármálalæsi og stjórnmál á öllum stigum skólakerfisins.

Við lýsum yfir áhyggjum okkar af takmörkuðum möguleikum ungs fólks til að sækja sér fjölbreytta atvinnu þar sem það á við.

Við leggjum til að kosningaraldur í sveitastjórnarkosningum verði lækkaður niður í 16 ára. Með þeim hætti gæti ungt fólk tekið virkan þátt í stjórnmálum í sínu nærumhverfi til þess að auka áhuga ungs fólks á stjórnmálum. Myndi það stuðla að virkri þátttöku ungmenna síðar meir á stjórnmálum.

Við viljum hvetja ungmennaráð til að auka sýnileika þannig að ungt fólk geri sér grein fyrir því að þau geti borið ýmis málefni undir ráðin sem koma þeim svo á framfæri.

Að eflt verði framboð á félagsstarfi fyrir ungt fólk á bilinu 16-25 ára, þá sérstaklega ungmenni á aldrinum 16-18 ára, með því að útbúa skýr markmið um ungmennahús á Íslandi.

Stofnaður verði sjóður sem ungmenni geta sótt um styrk í til þess að koma til móts við ungmenni varðandi aðgengi að frístundastarfi til dæmis vegna vegalendar og fjárhags.


Hafðu samband

Póstlisti


Þetta vefsvæði byggir á Eplica