Ungmenni utan skóla - morgunverðarfundur Náum áttum
Næsti morgunverðarfundur Náum áttum hópsins verður haldinn miðvikudaginn 15. nóvember nk. á Grand hótel kl. 08.15 - 10.00.
Ungmenni utan skóla: Hagir og úrræði
Að þessu sinni verður haldið áfram þar sem frá var horfið í síðasta mánuði og fjallað um viðkvæma hópa í samfélaginu. Erindin koma frá þeim Margréti Lilju Guðmundsdóttur frá Háskólanum í Reykjavík og fjallar um rannsóknir á líðan og högum ungmenna utan skóla, Sólveigu Þrúði Þorvaldsdóttur frá Fjölsmiðjunni og fjallar um nemendur Fjölsmiðjunnar og Jódísi Káradóttur frá Námsflokkum Reykjavíkur sem fjallar um ungmenni sem sækja Námsflokka Reykjavíkur. Fundarstjóri er Margrét Júlía Rafnsdóttir verkefnastjóri hjá Barnaheillum - Save the Children á Íslandsi og er fundurinn opinn öllum á meðan húsrúm leyfir.
Þátttökugjald er kr. 2.400,- sem þarf að staðgreiða á staðnum. Morgunverður innifalinn í gjaldinu.
Skráning er á: http://www.naumattum.is/page/na_skraningafund