4. febrúar 2015

Ungmenni funda með velferðarnefnd Alþingis

Í dag var stór dagur hjá umboðsmanni barna. Átta ungmenni sátu fund með Velferðarnefnd Alþingis í tilefni af 25 ára afmæli samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins.

Mynd frá fundi Velferðarnefndar Februar 2015

Í dag var stór dagur hjá umboðsmanni barna. Átta ungmenni sátu fund með Velferðarnefnd Alþingis í tilefni af 25 ára afmæli samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins. Þau eru á aldrinum 14–18 ára úr ráðgjafarhóp umboðsmanns barna,og ungmennaráðum Barnaheilla – Save the Children á Íslandi og UNICEF á Íslandi. 

Umræðuefni fundarins voru meðal annars þátttaka og réttindi barna, skólakerfið og menntun, og velferðarmál. Ungmennin voru með stuttar framsögur um hvert umræðuefni og áttu í kjölfarið skoðanaskipti við þingmenn.

Nefndarmenn tóku vel á móti ungmennunum og umræður voru málefnalegar. Umboðsmaður barna er afar ánægður með fundinn enda stóðu þessir frábæru fulltrúar barna og ungmenna á Íslandi sig mjög vel.

Umræðuefni og gestir fundarins

1 Þátttaka og réttindi barna
Sara Mansour, formaður ungmennaráðs UNICEF, fjallaði um barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og nauðsyn þess að kynna hann vel.

Einar Freyr Bergsson, ungmennaráði UNICEF, fjallarðium 12. grein barnasáttmálans og mikilvægi þess að fullorðnir hlusti á börn og ungmenni.

2 Skólakerfið og menntun í víðari skilningi
María Fema Wathne, ungmennaráði umboðsmanns barna, fjallaði um að færa þurfi skólakerfið nær nútímanum, m.a. um þörf fyrir meiri áherslu á hagnýtt nám.

Lilja Hrönn Önnu–Hrannarsdóttir, ungmennaráði umboðsmanns barna, fjallaði um sérkennslu í leik- og grunnskólum og að tryggja þurfi að öll börn fái skólamáltíðir burtséð frá fjárhag foreldra.

3 Velferðarmál í víðum skilningi
Anna Ólöf Jansdóttir, ungmennaráði UNICEF, fjallaði um skólamáltíðir, lýðheilsu, ójafna stöðu íslenskra barna og hvernig fátækt getur dregið úr möguleikum barna til náms og tómstunda.

Nóni Sær Ásgeirsson, ungmennaráði Barnaheilla – Save the Children á Íslandi, fjallaði um hversu mikið vanti upp á fræðslu um fatlanir fyrir umsjónarmenn, kennara og börn. Einnig talaði hann um hversu óréttlátt það er að börn sem eiga foreldra sem búa ekki saman geti aðeins fengið nauðsynleg hjálpartæki frá ríkinu á annað heimili sitt en ekki bæði.

Ingibjörg Ragnheiður Linnet, ungmennaráði Barnaheilla – Save the Children á Íslandi, fjallaði um geðheilbrigðismál og ríka þörf á úrbótum gagnvart börnum.

Herdís Ágústa Linnet, formaður ungmennaráðs Barnaheilla – Save the Children á Íslandi, fjallaði um birtingarmyndir ofbeldis gegn börnum og mikilvægi forvarna.

Bein útsending var frá fundinum á vef Alþingis og í Ríkissjónvarpinu. Hér er hægt að sjá upptöku af fundinum.

 

 

 

 


Hafðu samband

Póstlisti


Þetta vefsvæði byggir á Eplica