14. október 2020

Ungmennaráð heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna

Embættið hefur gert samning við forsætisráðuneytið um utanumhald og rekstur ungmennaráðs heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna. 

Meginmarkmið ungmennaráðsins er að vekja athygli á heimsmarkmiðunum og sjálfbærri þróun, bæði á meðal ungmenna og innan samfélagsins í heild. Því er ætlað að vera lifandi vettvangur þar sem heimsmarkmiðin og Barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna eru höfð að leiðarljósi og rædd með gagnrýnum og lausnamiðuðum hætti. Ungmennum er með þessum hætti gefinn vettvangur til að vekja athygli á heimsmarkmiðunum og sjálfbærri þróun og skapa þannig jafningjum tækifæri til að láta rödd sína heyrast um fyrrgreind málefni.

Ungmennaráð heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna samanstendur af tólf fulltrúum, víðs vegar að af landinu, á aldursbilinu 13-18 ára. Ungmennaráðið fundar sex sinnum á ári og þar á meðal árlega með ríkisstjórn. Hlutverk ráðsins er að fræðast og fjalla um heimsmarkmiðin ásamt því að vinna og miðla gagnvirku efni á samfélagsmiðlum um markmiðin og sjálfbæra þróun. Ungmennaráðið veitir jafnframt stjórnvöldum, í gegnum verkefnastjórn heimsmarkmiðanna, aðhald og ráðgjöf við innleiðingu markmiðanna.

Sérfræðingur embættisins Tinna Rós Steinsdóttir heldur utan um starfsemi ráðsins. Hægt er að fylgjast með störfum ungmennaráðsins á Facebook síðu þess en fyrir nánari upplýsingar vinsamlegast hafið samband í gegnum ungmennarad[hja]barn.is.


Hafðu samband

Póstlisti


Þetta vefsvæði byggir á Eplica