Undirbúningur fyrir Barnaþing 2025 hafinn
Skrifstofa umboðsmanns barna hefur hafið undirbúning fyrir Barnaþing sem haldið verður í Hörpu 20. og 21. nóvember 2025. Í dag voru send út bréf til þeirra barna sem valin voru úr slembiúrtaki til þess að taka þátt á þinginu.
Barnaþing verður haldið í fjórða skipti dagana 20. og 21. nóvember í Hörpu. Um 350 börn á aldrinum 11-15 ára fá boð um að sækja þingið en þau hafa verið valin með slembivali barna af öllu landinu úr Þjóðskrá. Með því viljum við gefa börnum í þessum aldurshópi jafna möguleika á að sækja þingið og tryggja að fjölbreyttur hópur barna taki þar þátt.
Á barnaþinginu verða réttindi barna rædd og börnum á Íslandi gefið tækifæri á að tjá skoðanir sínar, upplifanir og taka þátt í umræða við fullorðna. Markmið barnaþings er að efla lýðræðislega þátttöku barna og virkja þau í umræðu um málefni sem snerta þau.
Á þinginu verða unnar tillögur um hvernig við á Íslandi getum búið til betra samfélag fyrir börn. Niðurstöður barnaþings verða kynntar ríkisstjórninni sem mikilvægt framlag til stefnumótunar um málefni barna.