15. júní 2026

Umboðsmenn barna á Norðurlöndum kalla eftir aukinni áherslu á réttindi barna í tengslum við almannavarnir

Umboðsmenn barna á Norðurlöndum hafa undirritað sameiginlega yfirlýsingu þar sem stjórnvöld eru hvött til að tryggja réttindi barna við skipulag og samhæfingu almannavarna.

Í yfirlýsingunni kemur fram að reynsla undanfarinna ára hafi sýnt fram á mikilvægi þess að tryggja að réttindi barna séu ávallt höfð að leiðarljósi við undirbúning og viðbrögð við neyðarástandi.

Í yfirlýsingunni er áréttað að börn séu sjálfstæðir rétthafar og að þau verði oft fyrir meiri áhrifum en aðrir af almannavarnarástandi, farsóttum, náttúruhamförum og öðrum samfélagsáföllum, sem og þeim ráðstöfunum sem gripið er til vegna þeirra. Þrátt fyrir það séu þarfir, reynsla og sjónarmið barna ekki alltaf nægilega sýnileg í viðbúnaðaráætlunum og ákvarðanatöku stjórnvalda.

„Stjórnvöld verða að taka mið af réttindum barna samkvæmt Barnasáttmálanum við skipulag almannavarna. Það er mikilvægt að stjórnvöld tryggi að réttindi barna séu virt þegar beita þarf almannavarnaaðgerðum,“ segir Salvör Norðdal, umboðsmaður barna.

Í yfirlýsingunni er jafnframt lögð áhersla á að markvisst sé lagt mat á áhrif neyðarráðstafana á börn, einkum börn í viðkvæmri stöðu, og að þjónusta og upplýsingar taki mið af þörfum og aðstæðum ólíkra hópa barna.

Að lokum leggja umboðsmenn barna áherslu á mikilvægi áframhaldandi norræns samstarfs og þekkingarmiðlunar til að tryggja að réttindi barna séu virt á tímum almannavarnarástands.

Hér er hægt að lesa yfirlýsinguna á ensku

Sameiginleg yfirlýsing um börn og viðbúnað við almannavarnarástandi 

Frá umboðsmönnum barna á Norðurlöndunum

Umboðsmenn barna í Danmörku, Finnlandi, Íslandi, Noregi, Svíþjóð, Grænlandi og Álandseyjum standa að þessari sameiginlegu yfirlýsingu til stjórnvalda á Norðurlöndunum

Börn eiga sjálfstæð réttindi, og viðbúnaðar og viðbrögð vegna almannavarnarástands verða að grundvallast með skýrum hætti á réttindum barna í samræmi við samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins (Barnasáttmálann). Nýlegir atburðir, þar á meðal heimsfaraldur og önnur umfangsmikil almannavarnaratvik hafa leitt í ljós að börn verða gjarnan fyrir hlutfallslega meiri áhrifum en aðrir, af ráðstöfunum sem gerðar eru vegna neyðarástand þegar ekki er nægilega tekið tillit til þarfa, réttinda og reynslu barna. Reynslan sýnir einnig að það er oft litið fram hjá börnum í ákvarðanatökuferlinu eða að þau eru höfð með í ráðum of seint til að geta haft raunveruleg áhrif á þær ákvarðanir sem teknar eru. Þetta undirstrikar nauðsyn þess að innleiða markvissari og kerfisbundnari nálgun til að tryggja þátttöku barna á tímum almannavarnarástands.

Þessi yfirlýsing endurspeglar sameiginlega afstöðu umboðsmanna barna á Norðurlöndunum varðandi þau grundvallaratriði sem standa þarf vörð um við skipulag almannavarna, beitingu ráðstafana og uppbyggingu eftir neyðarástand. Atriðin hér að neðan byggja á þeim meginreglum sem lagðar voru til grundvallar um stöðu barna á tímum almannavarnarástand í skýrslu sem Norðurlandaráð fól Norrænu velferðarmiðstöðinni að vinna um börn, heimsfaraldur og þátttöku.

Við hvetjum stjórnvöld ríkis og sveitarfélaga til að tryggja að eftirfarandi meginreglur séu samþættar almannavarnarviðbúnaði, löggjöf, stefnumótun og framkvæmd á kerfisbundinn hátt:

1. Vernda hlutverk umboðsmanns barna og tryggja þátttöku hans í öllum málefnum sem varða börn

Það þarf ávallt að standa vörð um sjálfstæði og hlutverk umboðsmanns barna, einnig á tímum almannavarnarástands. Stjórnvöld verða að tryggja að umboðsmaður eigi raunverulega aðkomu að gerð viðbragðsáætlana, ákvarðanatöku og mats í öllum málum sem varða börn.

2. Vernda eðlilegt líf barna eins og kostur er

Þegar almannavarnarástand ríkir verða ráðstafanir að miða að því að sem minnst röskun verði á daglegu lífi barna. Tryggja þarf að börn njóti áfram menntunar, þau geti leikið sér og sótt tómstundastarf, en slíkt er nauðsynlegt fyrir velferð barna, þroska þeirra og þrautseigju.

3. Tryggja vernd, umönnun og þátttöku í samræmi við réttindi barna

Viðbragðsáætlanir og viðbrögð við almannavarnarástandi verða að ná til allra þátta réttinda barna:

Vernd: Vernda börn gegn hvers kyns skaða, ofbeldi þar á meðal kynferðislegu ofbeldi og misnotkun, vanrækslu og brotum gegn réttindum þeirra, sem og aukinni áhættu sem getur komið upp við hættu- og neyðarástand.

Umönnun: Tryggja að börn hafi aðgang að nauðsynlegri þjónustu, þar á meðal menntun, heilbrigðisþjónustu, sálfélagslegum stuðningi og upplýsingum sem hæfa aldri barnsins eru aðgengilegar og sniðnar að þörfum og aðstæðum ólíkra hópa barna.

Þátttaka: Tryggja rétt barna til að láta frjálslega í ljós skoðanir sínar og að tekið sé mark á þeim í málum sem þau varða, bæði einstaka börn og hópa barna, þar á meðal við gerð viðbragðsáætlana og þegar taka á ákvarðanir um viðbrögð í almannavarnarástandi. Þátttaka verður að vera örugg, aðgengileg og sniðin að aldri og aðstæðum ólíkra hópa barna.

4. Framkvæma kerfisbundið mat á áhrif á börn

Leggja þarf mat á áhrif á börn með kerfisbundnum hætti. Slíkt mat þarf að fara fram áður en neyðarráðstafanir eru gerðar og endurskoða þarf matið reglulega á meðan almannavarnarástand varir. Slíkt mat er nauðsynlegt til að bera kennsl á möguleg neikvæð áhrif á börn, sérstaklega börn í viðkvæmri stöðu, koma í veg fyrir að brotið sé gegn réttindum barna og tryggja að þegar ákvarðanir eru teknar sé gætt að meðalhófi og að þær samræmist bestu hagsmunum barna.

Norrænir umboðsmenn barna hvetja stjórnvöld til að taka mið af þessum meginreglum, ekki sem valkvæðum sjónarmiðum, heldur grundvallarkröfum fyrir réttindamiðaðan, árangursríkan og sjálfbæran viðbúnað við neyðarástandi. Réttindi barna, sjónarmið þeirra og þarfir þurfa að vera í forgrunni, fyrir, á meðan og eftir almannavarnarástand.

Umboðsmenn barna á Norðurlöndunum leggja einnig áherslu á mikilvægi áframhaldandi samstarfs og miðlunar þekkingar og reynslu á milli Norðurlandanna til að styrkja réttindi barna þegar almannavarnarástand ríkir.


91662556-f021-47c3-9b04-66b69882e3bc

Umboðsmenn barna á Norðurlöndunum. Myndin er tekin af vefsíðu umboðsmanns barna í Noregi.



Hafðu samband

Póstlisti


Þetta vefsvæði byggir á Eplica