3. nóvember 2026

Tryggja þarf börnum með fjölþættan vanda stöðugleika og samfellda þjónustu

Umboðsmaður barna hefur óskað eftir upplýsingum frá mennta- og barnamálaráðuneytinu um undirbúning sérhæfðra vistunarúrræða á vegum ríkisins og hvernig tryggja eigi áframhaldandi búsetu og þjónustu við börn með fjölþættan vanda um áramótin.

Hinn 6. janúar síðastliðinn sendi umboðsmaður barna ráðuneytinu bréf þar sem óskað var eftir upplýsingum um framkvæmd samkomulags ríkis og sveitarfélaga um þjónustu við börn með fjölþættan vanda. Í svari ráðuneytisins frá 28. janúar kom fram að enn hefði ekki verið komið á fót nýjum vistunarúrræðum en unnið væri að lausn húsnæðismála.

Umboðsmaður barna leggur áherslu á að börnin búi ekki við óvissu um áframhaldandi búsetu og þjónustu. Nú þegar skammt er til áramóta er brýnt að fyrir liggi skýr áætlun um hvernig búsetu og þjónustu við hvert og eitt barn verði háttað frá og með 1. janúar 2027. Mikilvægt er að fyrirhugaðar breytingar raski ekki þeim stöðugleika og þeirri samfellu sem börnin eiga rétt á.

Í bréfinu er m.a. óskað eftir upplýsingum um staðsetningu fyrirhugaðra vistunarheimila, stöðu framkvæmda, hvort tilskilin leyfi liggi fyrir og hvernig ráðningu starfsfólks miði. Jafnframt er óskað eftir rökstuddu mati ráðuneytisins á því hvort unnt verði að taka á móti börnum í nýjum vistunarúrræðum frá og með 1. janúar 2027.

Hægt er að lesa bréfið hér.


Hafðu samband

Póstlisti


Þetta vefsvæði byggir á Eplica