12. júní 2026

Umboðsmaður barna og Mannréttindastofnun Íslands óska eftir upplýsingum um stöðu fullgildingar þriðju valfrjálsu bókunarinnar við Barnasáttmálann

Umboðsmaður barna og Mannréttindastofnun Íslands sendu í gær erindi til dómsmálaráðherra þar sem óskað er upplýsinga um stöðu fullgildingar þriðju valfrjálsu bókunarinnar við samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins.

Þriðja valfrjálsa bókunin kveður á um sérstaka kvörtunarleið sem gerir börnum og fulltrúum þeirra kleift að bera meint brot á réttindum samkvæmt Barnasáttmálanum undir barnaréttarnefnd Sameinuðu þjóðanna.

Umboðsmaður barna hefur um árabil lagt áherslu á að Ísland fullgildi bókunina og styrki þar með réttarvernd barna. 

Hægt er að lesa erindið hér.


Hafðu samband

Póstlisti


Þetta vefsvæði byggir á Eplica