Umboðsmaður barna hvetur skóla til samráðs við nemendur um símafrí
Umboðsmaður barna hefur sent bréf til allra grunnskóla landsins þar sem vakin er athygli á mikilvægi þess að nemendur fái að taka virkan þátt í innleiðingu reglugerðar um notkun síma og snjalltækja á skólatíma.
Reglugerð um notkun síma og snjalltækja á skólatíma í grunnskólum og frístundaheimilum hefur tekið gildi. Samkvæmt reglugerðinni er notkun síma og snjalltækja almennt óheimil á skólatíma og skulu skólar og frístundaheimili setja nánari reglur um geymslu og afhendingu tækjanna í samráði við skólasamfélagið.
Í reglugerðinni er sérstaklega kveðið á um þátttöku nemenda í innleiðingu og framkvæmd hennar, meðal annars varðandi fyrirkomulag geymslu og afhendingu tækja og áhrif símafrís á nemendur.
Umboðsmaður barna hvetur grunnskóla til að hafa virkt samráð við nemendur áður en endanlegar ákvarðanir um fyrirkomulag eru teknar. Með virkri þátttöku nemenda má bæði stuðla að aukinni sátt um fyrirkomulagið og tryggja að það taki mið af reynslu, aðstæðum og þörfum barna.
Hægt er að lesa bréf umboðsmanns barna hér .