26. október 2026

Umboðsmaður barna áréttar mikilvægi öryggis barna á Stuðlum

Umboðsmaður barna hefur sent bréf til mennta- og barnamálaráðuneytisins og byggingarfulltrúa Reykjavíkur vegna áframhaldandi notkunar húsnæðis Stuðla að Fossaleyni 17 án þess að vottorð um öryggisúttekt hafi verið gefið út.

Þann 24. apríl 2026 sendi umboðsmaður barna bréf til byggingarfulltrúa Reykjavíkur þar sem óskað var eftir upplýsingum um hvort vottorð um öryggisúttekt hefði verið gefið út vegna viðbyggingar Stuðla, en hluti hennar hafði verið tekinn aftur í notkun í apríl 2025. Í svari byggingarfulltrúa, dags. 4. maí 2026, kom fram að vottorð um öryggisúttekt hefði ekki verið gefið út vegna athugasemda um brunahólfandi hurðir. Í bréfinu kom jafnframt fram að notkun byggingarinnar yrði ekki leyfð í óbreyttu ástandi nema með viðeigandi ráðstöfunum til að tryggja öryggi.

Umboðsmaður barna óskaði í framhaldinu eftir frekari upplýsingum með bréfi, dags. 19. ágúst 2026. Þar sem svör bárust ekki innan umbeðins frests var erindið ítrekað með bréfi, dags. 8. september 2026.

Svar byggingarfulltrúa barst 11. september síðastliðinn. Þar kom fram að brunahólfandi innihurðir uppfylltu ekki kröfur samþykktra hönnunargagna og að vottorð um öryggisúttekt hefði því ekki verið gefið út. Byggingarfulltrúi hafði engu að síður heimilað áframhaldandi notkun húsnæðisins tímabundið með tilteknum öryggisráðstöfunum og veitt frest til úrbóta til 1. desember 2026. 

Í ljósi þessara upplýsinga hefur umboðsmaður barna sent byggingarfulltrúa Reykjavíkur og mennta- og barnamálaráðuneytinu bréf þar sem áréttuð eru atriði er varða öryggi barna á Stuðlum.

Umboðsmaður barna fjallar í bréfi til byggingarfulltrúa um að samkvæmt 1. mgr. 35. gr. laga um mannvirki, nr. 160/2010, er óheimilt að taka mannvirki í notkun án þess að vottorð um öryggisúttekt hafi verið gefið út. Umboðsmaður barna vekur athygli á því að byggingarfulltrúi hafi heimilað áframhaldandi notkun húsnæðisins þrátt fyrir að slíkt vottorð lægi ekki fyrir. Jafnframt er áréttað að skortur á öðrum vistunarúrræðum geti ekki réttlætt frávik frá lögbundnum öryggiskröfum. 

Í bréfi til ráðuneytisins er áréttuð ábyrgð stjórnvalda á öryggi barna sem vistuð eru á Stuðlum. Umboðsmaður barna leggur áherslu á að tryggt sé að öllum öryggisráðstöfunum sé fylgt og að nauðsynlegum úrbótum verði lokið án tafar. Jafnframt þurfi að liggja fyrir viðbragðsáætlun ef ekki reynist unnt að tryggja öryggi barna í húsnæðinu.


Hafðu samband

Póstlisti


Þetta vefsvæði byggir á Eplica