Til hamingju Skáksveit Salaskóla!
Skáksveit Salaskóla varð í gær, 18. júlí, heimsmeistari grunnskólasveita á skákmóti sem fram fór í Tékklandi þrátt fyrir naumt tap gegn Suður-Afrískri sveit í lokaumferðinni. Þetta er í fyrsta sinn sem íslensk skáksveit hampar heimsmeistaratitli.
    
Heimsmeistaramót grunnskólasveita hófst 12. júlí í Pardubice í Tékklandi og er hluti af Czech Open skákhátíðinni.
Sveit Salaskóla skipa:
- 
Jóhanna Björg Jóhannsdóttir 2 v. af 9
- 
Patrekur Maron Magnússon 6 v. af 9
- 
Páll Andrason 5 v. af 9
- 
Guðmundur Kristinn Lee 3,5 v. af 7
 Varamaður er Birkir Karl Sigurðsson 0,5 v. af 2
Þjálfari krakkanna er Hrannar Baldursson.