20. mars 2007

Þingsályktunartillaga um eflingu náms- og starfsráðgjafar samþykkt

Á nýafstöðnu þingi var tillaga til þingsályktunar um eflingu náms- og starfsráðgjafar í grunn- og framhaldsskólum samþykkt.

Á nýafstöðnu 133. löggjafarþingi 2006-2007 var tillaga til þingsályktunar um eflingu náms- og starfsráðgjafar í grunn- og framhaldsskólum samþykkt óbreytt.  Þingsályktunartillagan er svohljóðandi:

Alþingi ályktar að fela menntamálaráðherra að skipa nefnd sem kanni gildi þess og gagn að auka náms- og starfsráðgjöf í grunn- og framhaldsskólum, sem úrræðis gegn brottfalli nemenda í framhaldsskólum og fyrir farsælt náms- og starfsval. Nefndin kanni sérstaklega ástæður þess að svo stór hluti nemenda velur bóknám að loknum grunnskóla, hver séu áhrif foreldra og kennara á náms- eða starfsval og hvaða hugmyndir grunnskólanemendur hafi um framhaldsnám og störf að námi loknu. Jafnframt geri nefndin samanburð á náms- og starfsráðgjöf í helstu nágrannalöndum, svo og árangri ráðgjafar og annarra úrræða gegn brottfalli.

Ráðherra skili Alþingi skýrslu um niðurstöður nefndarinnar, þar á meðal tillögum um aukna náms- og starfsráðgjöf og fyrirkomulag hennar ef niðurstöður hníga í þá átt, fyrir 15. nóvember 2007.

Sjá þingsályktunartillöguna ásamt greinargerð hér  og feril málsins hér.


Hafðu samband

Póstlisti


Þetta vefsvæði byggir á Eplica