16. maí 2013

Þingmenn í heimsókn

Í dag, 16. maí, bauð umboðsmaður barna nýkjörnum þingmönnum á kynningarfund á skrifstofu embættisins að Kringlunni 1. arkmiðið með boðinu var að kynna embættið og þau málefni sem helst brenna á því.

Í dag, 16. maí, bauð umboðsmaður barna nýkjörnum þingmönnum á kynningarfund á skrifstofu embættisins að Kringlunni 1. Nítján þingmenn úr fimm flokkum mættu.

Markmiðið með boðinu var að kynna embættið og þau málefni sem helst brenna á því en umboðsmanni barna ber að vinna að bættum hag barna og standa vörð um hagsmuni, þarfir og réttindi þeirra á öllum sviðum samfélagsins. Fulltrúar úr ráðgjafarhópi umboðsmanns barna kynntu starfs hópsins og hvöttu þingmenn til að leita eftir áliti barna áður en ákvarðanir sem hafa áhrif á börn eru teknar.

Þá var fjallað um Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna sem var lögfestur í febrúar sl. Umboðsmaður barna leggur ríka áherslu á kynningu á Barnasáttmálanum og vill gjarnan kom af stað umræðu um innleiðingu hans í íslenskt samfélag. Í lokin voru þingmenn fengnir í leik til að kynnast sáttmálanum betur.

Til að sáttmálinn geti orðið að veruleika á Íslandi er nauðsynlegt að fræða börn og fullorðna um réttindi barna á markvissan hátt. Auk þess er mikilvægt að tryggja að allir þeir sem bera ábyrgð á börnum á einn eða annan hátt þekki til og skilji hina einstöku sýn á stöðu barna í samfélaginu sem sáttmálinn boðar. Umboðsmaður leggur ríka áherslu á það að hlusta eftir sjónarmiðum barna og taka tillit til skoðana þeirra og ábendinga enda er það í samræmi við 12. gr. Barnasáttmálans. Umboðsmaður barna hvetur alla þá sem vinna með börnum, fyrir börn eða taka ákvarðanir sem varða börn að huga að þessari skyldu.

Myndir frá heimsókninni er að finna á Facebook síðu umboðsmanns barna.


 


Hafðu samband

Póstlisti


Þetta vefsvæði byggir á Eplica