9. október 2018

Þátttaka í sérfræðihóp fatlaðra barna og unglinga

Við erum að leita eftir þátttakendum í sérfræðihópana, strákum á aldrinum 12 til 15 ára og stúlkum á aldrinum 15 til 18 ára.

Við leitum sérfræðinga meðal fatlaðra og unglinga

Í Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna kemur fram að börn og unglingar eiga rétt á að láta skoðun sína í ljós og segja hvað þeim finnst. Þess vegna ætlar umboðsmaður barna að vera með sérfræðihópa fatlaðra barna og unglinga. Þetta er gert til að umboðsmaður fái upplýsingar um það sem fötluðum börnum og unglingum finnst mikilvægt og til að fá ábendingar þeirra og tillögur um það sem má gera betur.

Við erum að leita eftir þátttakendum í sérfræðihópana, strákum á aldrinum 12 til 15 ára og stúlkum á aldrinum 15 til 18 ára.

Ef þú hefur áhuga á að taka þátt eða ef þú vilt fá frekari upplýsingar um verkefnið hafðu þá samband við Hrafnhildi Snæfríðar- og Gunnarsdóttur, verkefnastjóra, í síma  525-4176 / 694-3264 eða sendu vefpóst á hsg@hi.is.

Einnig er hægt að hafa samband við umboðsmann barna í síma 800-5999 (gjaldfrjálst númer) eða með tölvupósti a ub@barn.is.

Auglýsing frá umboðsmanni barna um sérfræðihóp fatlaðra barna

 

Hér má nálgast kynningarbréf um sérfræðihópinn til foreldra (pdf)

Hér má nálgast kynningarbréf um sérfræðihópinn til barna og ungmenna (pdf)


Hafðu samband

Póstlisti


Þetta vefsvæði byggir á Eplica