26. október 2015

Tengslafundur með félagasamtökum

Síðustu tvö ár hefur umboðsmaður barna boðið hinum ýmsu félagasamtökum sem vinna að málefnum barna á fund. Markmiðið með þessum fundum hefur verið að ræða hagsmuna- og réttindamál barna út frá ýmsum hliðum og efla samráð og samstarf milli aðila sem vinna með einum eða öðrum hætti að því að bæta stöðu barna í samfélaginu.

Nú er rúmlega ár liðið frá síðasta fundi og vill umboðsmaður barna því enn og aftur bjóða öllum samtökum sem vinna að hagsmunamálum barna á tengslafund. Fundurinn verður haldinn miðvikudaginn 28. október, milli kl. 14:30-16:00, á skrifstofu umboðsmanns barna, Kringlunni 1, 5. hæð (gamla Morgunblaðshúsið). Eins og síðustu tvö ár er markmiðið með fundinum að skiptast á upplýsingum og læra hvort af öðru. Í byrjun fundarins myndum við gjarnan vilja biðja þá sem mæta um að segja stuttlega frá starfi samtaka sinna og helstu málefnunum sem brenna á þeim.

Á síðustu tveimur fundum hefur umboðsmaður barna verið með stutta fræðslu (örnámskeið) um réttindi barna. Umboðsmaður barna mun nú bjóða upp á slíka fræðslu fyrir þá sem hafa áhuga hálftíma fyrir fundinn, eða kl. 14:00.

Öll félagasamtök sem vinna að málefnum barna eru velkomin. Vinsamlegast tilkynnið þátttöku með því að senda tölvupóst á ub@barn.is eða hringja í síma 552-8999.1 Joefn En Ekki Eins (1)


Hafðu samband

Póstlisti


Þetta vefsvæði byggir á Eplica