3. janúar 2017

Tannlækningar 3 - 17 ára barna nú gjaldfrjálsar

Umboðsmaður barna vekur athygli á að 4 og 5 ára börn eiga nú rétt á gjaldfrjálsum tannlækningum. Það þýðir að kostnaður vegna tannlækninga barna frá 3 - 17 ára er nú að fullu greiddur af Sjúkratryggingum Íslands, að árlegu komugjaldi frátöldu sem er 2.500 kr.

Greiðsluþátttaka sjúkratrygginga er þó háð því að foreldrar skrái barn/börn sín hjá heimilistannlækni sem hægt er að gera Réttindagátt Sjúkratrygginga Íslands. Þá skráningu geta tannlæknar einnig séð um, sé þess óskað.

Lista yfir heimilistannlækna má nálgast á vef Sjúkratrygginga Íslands en mælt er með því að skrá barn hjá heimilistannlækni um eins árs aldurs. 

Samningurinn tekur einnig til barna í bráðavanda, sem eru yngri en þriggja ára og búa við erfiðar félagslegar aðstæður. Tilvísun þarf að berast tannlækni frá heilsugæslu, barnaverndar- eða félagsmálayfirvöldum vegna þessara barna og skilyrði að Sjúkratryggingar Íslands samþykki umsókn frá tannlækni á grundvelli tilvísunar.

Þann 1. janúar 2018 verða tannlækningar allra barna yngri en 18 ára greiddar að fullu af Sjúkratryggingum Íslands, að undanskildu árlegu komugjaldi.

Sjá nánar á vef Sjúkratrygginga Íslands

7 Heilsuvernd

Hafðu samband

Póstlisti

Þetta vefsvæði byggir á Eplica