15. maí 2026

Sveitarstjórnarkosningar á morgun

Á morgun, þann 16. maí, fara fram sveitarstjórnarkosningar um land allt. Umboðsmaður barna hefur fengið jákvæð viðbrögð við hvatningu sem send var til sveitarfélaga, ungmennaráða sveitarfélaga og grunnskóla landsins um að standa fyrir viðburðum sem efla lýðræðislega þátttöku barna í aðdraganda kosninganna.

Í apríl sendi umboðsmaður barna bréf til allra sveitarfélaga, ungmennaráða sveitarfélaga og grunnskóla landsins með hvatningu um að standa fyrir viðburðum á borð við krakkakosningar eða umræðufundum með frambjóðendum og börnum. Markmið viðburðanna væri að efla lýðræðislega þátttöku barna í aðdraganda sveitarstjórnakosninganna.

Umboðsmaður barna hefur fengið góð viðbrögð við hvatningunni og veit embættið til þess að þónokkur sveitarfélög og grunnskólar hafi þegar haldið krakkakosningar eða umræðufundi í aðdraganda kosninganna. Embættið fagnar þessu framtaki enda mikilvægt að efla þátttöku og lýðræðisvitund barna og ungmenna fyrir kosningar, og veita þeim tækifæri á að koma skoðunum sínum á framfæri.


Hafðu samband

Póstlisti


Þetta vefsvæði byggir á Eplica