15. janúar 2013

Styrkur íþrótta - Hádegisfundur

Fimmtudaginn 17. janúar munu ÍSÍ og UMFÍ standa í sameiningu fyrir hádegisfundi í húsakynnum KSÍ á Laugardalsvelli og hefst hann kl.12:10.

Niðurstöður rannsókna og hugleiðingar um skipulagt íþróttastarf fyrir börn og ungmenni

Fimmtudaginn 17. janúar munu ÍSÍ og UMFÍ standa í sameiningu fyrir hádegisfundi í húsakynnum KSÍ á Laugardalsvelli og hefst hann kl.12:10. Þar mun Dr. Viðar Halldórsson m.a. ræða um hvort að íþróttahreyfingin sé að standast áskoranir nútímasamfélags eða eingöngu að þjálfa til árangurs og styðjast við niðurstöður rannsókna Rannsókna & greiningar, sl. 20 ár. Þá mun Íris Mist Magnúsdóttir Evrópumeistari í hópfimleikum ræða um hvað íþróttaiðkun hefur gefið henni. Að lokum mun Daði Rafnsson yfirþjálfari knattspyrnu hjá Breiðabliki segja frá því hvernig félagið vinnur að íþróttalegu uppeldi með stóra hópa bæði innan og utan vallar. Fundurinn verður tekinn upp og verður aðgengilegur á heimasíðum ÍSÍ og UMFÍ.

Skráning fer fram á skraning@isi.is en þátttaka er ókeypis og öllum heimil.


Hafðu samband

Póstlisti


Þetta vefsvæði byggir á Eplica