21. ágúst 2012

Skrifstofuhúsnæði óskast

Umboðsmaður barna óskar eftir því að taka á leigu skrifstofuhúsnæði. Auglýsing þess efnis var birt í dagblöðum 18. ágúst sl. auk þess sem hægt er að fá allar upplýsingar á vefsvæði Ríkiskaupa, sjá hér: http://www.rikiskaup.is/utbod/utb/15303.

Ríkissjóður óskar eftir að taka á leigu skrifstofuhúsnæði fyrir umboðsmann barna. Auglýsing þess efnis var birt í dagblöðum 18. ágúst auk þess sem hægt er að fá upplýsingar um þær kröfur sem húsnæðið verður að uppfylla á vefsvæði Ríkiskaupa, sjá hér: http://www.rikiskaup.is/utbod/utb/15303.

Miðað er við að húsnæðið verði tekið á leigu til 5 ára, fullbúið til notkunar, án lauss búnaðar. Gerð er krafa um staðsetningu á póst­númerasvæðinu 101, 103, 105 eða 108. Til staðar þarf að vera gott aðgengi, næg bílastæði og góð tengsl við almenningssamgöngur. Húsrýmisþörf stofnunarinnar er áætluð um 135 fermetrar og er um að ræða hefðbundið skrifstofuhúsnæði.

Fyrirspurnarfrestur rennur út 24. ágúst 2012, en svarfrestur er til og með 28. ágúst 2012. Leigutilboðum þar sem fram kemur stærð, ástand og staðsetning húsnæðis, ásamt leiguverði, skal skila til Ríkiskaupa, Borgartúni 7, 105 Reykjavík, eigi síðar en þriðjudaginn 4. september 2012.


Hafðu samband

Póstlisti


Þetta vefsvæði byggir á Eplica