14. júlí 2026

Skert starfsemi vegna sumarfría

Vegna sumarfrís starfsfólks getur orðið bið á svörun erinda sem berast næstu daga. Sem fyrr njóta börn ávallt forgangs þegar erindum er svarað.

Vegna sumarfrís starfsfólks verður starfsemi á skrifstofu embættisins með minna móti næstu vikurnar. Það getur því orðið bið á svörun á þeim erindum sem berast þann tíma sem sumarleyfi starfsfólks stendur yfir. Þau erindi sem berast frá börnum njóta þó forgangs og verður svarað eins fljótt og auðið er.

Umboðsmaður barna óskar öllum börnum og fjölskyldum þeirra gleðilegs sumars. Munum að það sem skiptir börn oft mestu máli er að eiga tíma með fólkinu sínu, finna að á þau sé hlustað og að þau fái að njóta þess að vera börn.

Njótið sumarsins


Hafðu samband

Póstlisti


Þetta vefsvæði byggir á Eplica