Samvinna skóla og barnaverndar - Ráðstefna
Barnaverndarstofa stendur fyrir ráðstefnu um samvinnu skóla og barnaverndar á Grand hótel Reykjavík, 29. maí 2012, klukkan 8:30-16:00. Ráðstefnan er haldin í samstarfi við Skólastjórafélag Íslands, Samband íslenskra sveitarfélaga, Samtök félagsmálastjóra, Skóla- og frístundasvið Reykjavíkur og Barnavernd Reykjavíkur.
Ráðstefnan fjallar um stöðu þeirra barna sem fá þjónustu í barnaverndakerfinu gagnvart skóla og menntun, ekki síst fósturbarna og barna á meðferðarheimilum, og mikilvægi samvinnu þessara kerfa. Aðalfyrirlesarar eru Bo Vinnerljung prófessor í félagsráðgjöf og sérfræðingur hjá sænska velferðarráðinu (National Board of Health and Welfare, Stockholm). og Tore Andreassen sálfræðingur við Barnaverndarstofu Noregs (Barne-, ungdoms-, og familiedirektoratet). Nokkur styttri íslensk innlegg fjalla um tækifæri og áskoranir í samstarfi barnaverndar og skóla hér á landi.
Ráðstefnan er þátttakendum að kostnaðarlausu en hádegisverðarhlaðborð kostar kr. 2.950. Skráning er á netfangið bvs@bvs.is eða í síma 530-2600 einnig þarf að skrá þátttöku vegna hádegisverðar.
Mögulegt er að fylgjast með ráðstefnunni í fjarfundi og þeir sem kjósa að taka þátt í fjarfundi eru einnig beðnir um að skrá þátttöku á netfangið bvs@bvs.is eða í síma 530-2600.
Nánar hér á www.bvs.is.