9. maí 2016

Samráðsfundur ungmennaráða

Nýlega hélt Menntamálastofnun samráðsfund með fulltrúum ungmennaráða. Tilgangur fundarins var að fá skoðanir ungmenna á ýmsum málefnum og verkefnum stofnunarinnar. Fulltrúar úr ráðgjafarhópi umboðsmanns barna, Kristján Helgason og Inga Huld Ármann, mættu á fundinn, ásamt fulltrúum frá ungmennaráðum Barnaheilla, SAFT, Samfés, Unicef, UMFÍ og sveitarfélaganna Árborg, Akureyri, Fjarðabyggð og Stykkishólmi.

Fundur með MMS2Nýlega hélt Menntamálastofnun samráðsfund með fulltrúum ungmennaráða. Tilgangur fundarins var að fá skoðanir ungmenna á ýmsum málefnum og verkefnum stofnunarinnar. Fulltrúar úr ráðgjafarhópi umboðsmanns barna, Kristján Helgason og Inga Huld Ármann, mættu á fundinn, ásamt fulltrúum frá ungmennaráðum Barnaheilla, SAFT, Samfés, Unicef, UMFÍ og sveitarfélaganna Árborg, Akureyri, Fjarðabyggð og Stykkishólmi. 

Ungmennin ræddu ýmis málefni sem eru ofarlega á baugi í menntamálum. Má þar nefna breyttan einkunnakvarða við lok grunnskóla, rafræn samræmd könnunarpróf, þjóðarsáttmála um læsi og rafræna námsefnisgerð. Einnig var rætt um styttingu framhaldsskólans og kennslu í lífsleikni og sundi í grunnskóla. Unnið var með umræðuefnin í vinnustofum og í lokin kynntu unglingarnir niðurstöður. Fóru fjörugar umræður fram í kjölfarið, en meginniðurstöður fundarins voru:

  • Óskað var eftir því að samráð verði haft í framtíðinni við ungmenni þegar verið er að taka ákvarðanir sem varða þau.
  • Ungmennin voru ósátt og gerðu athugasemdir við að hafa ekki verið spurð áður en ákvarðanir voru teknar um breyttan einkunnakvarða. 
  • Kallað var eftir kynningum sem ná beint til nemenda á mikilvægum málefnum.

Menntamálastofnun hyggst í framtíðinni leita til ungmenna vegna ákvarðanatöku í málefnum sem varða þau og var fundurinn fyrsta skrefið í slíku samráði. Á næstu vikum verður unnið að því að flétta samráði við ungmenni inn í verklag stofnunarinnar og unnið með niðurstöður þessa fyrsta samráðsfundar. Skýrsla með niðurstöðum fundarins verður birt á heimasíðu mms.is og þær kynntar fyrir mennta- og menningarmálaráðuneyti.

Mikilvægt er að leita eftir skoðunum barna og ungmenna þegar verið er að taka ákvarðanir eða móta stefnur sem varðar þau. Að mati umboðsmanns barna er þetta stórt skref í þá átt að auka áhrif barna og ungmenna að ákvarðanatökum er snúa að námi þeirra og skólaumhverfi. 

Því fagnar umboðsmaður barna þessu framtaki hjá Menntamálastofnun og hlakkar til að fylgjast með framvindunni. 

Fundur með MMS


Hafðu samband

Póstlisti


Þetta vefsvæði byggir á Eplica