20. október 2010

Rit um ábyrgð aðila sem standa fyrir félags- og tómstundastarfi fyrir börn og unglinga

Ritið „Ábyrgð aðila sem standa fyrir félags- og tómstundastarfi fyrir börn og unglinga“ er komið út á vegum mennta- og menningarmálaráðuneytis og Æskulýðsráðs. Í ritinu er aðallega fjallað um öryggismál, aðgæslu- og eftirlitsskyldu starfsfólks, vinnuveitendaábyrgð, skaðabótaskyldu og tryggingar.

Ritið „Ábyrgð aðila sem standa fyrir félags- og tómstundastarfi fyrir börn og unglinga“ er komið út á vegum mennta- og menningarmálaráðuneytis og Æskulýðsráðs.  Í ritinu er aðallega fjallað um öryggismál, aðgæslu- og eftirlitsskyldu starfsfólks, vinnuveitendaábyrgð, skaðabótaskyldu og tryggingar.

Leitað var til dr. Ragnhildar Helgadóttur, prófessors við Háskólann í Reykjavík, um að vinna álitsgerð um ábyrgð í félags- og tómstundastarfi. Skoðaði hún hvernig háttað væri ábyrgð stjórnenda, umsjónarmanna, starfsmanna, kennara, leiðbeinenda, sjálfboðaliða, launaðra starfsmanna og annarra sem starfa með börnum og ungmennum í skipulögðu félags- og tómstundastarfi

Ritið hefst á eftirfarandi samantekt fyrir foreldra:

Samantekt fyrir foreldra
Samkvæmt íslenskum lögum bera þau félög og samtök sem standa fyrir
félags- og tómstundastarfi ekki sjálfkrafa ábyrgð á slysum sem börn verða
fyrir í starfinu.
Börn og ungmenni fá tjón af völdum slyss, t.a.m. tannlæknakostnað, ekki
greiddan af öðrum, nema einhver beri skaðabótaábyrgð á slysinu.
Skilyrði skaðabótaábyrgðar eru m.a. að sá sem krafinn er um bætur eigi sök
á slysinu.
Ef barn eða ungmenni slasast í óhappi sem engum verður kennt um ber sá sem
stendur fyrir félags- og tómstundastarfinu þess vegna ekki skaðabótaábyrgð
á því.
Sá sem stendur fyrir starfinu ber hins vegar skaðabótaábyrgð ef starfsmenn
hans, launaðir eða ólaunaðir, hafa sýnt af sér sök, t.a.m. vanrækslu við að
gæta barna, og það veldur slysi.
Sá sem stendur fyrir starfinu, eða umráðamaður aðstöðu, getur orðið
bótaskyldur ef aðbúnaður er ófullnægjandi og slys verður vegna þess.
Börn og ungmenni geta þurft að bæta öðrum börnum tjón sem þau valda
þeim.
Heimilistryggingar fela langoftast í sér ábyrgðartryggingu vegna tjóns sem
börn valda og sumar fela líka í sér slysatryggingu vegna slysa sem börn
verða fyrir í frítíma. Þar sem slíkum slysatryggingum sleppir er barn eða
ungmenni ekki tryggt í félags- og tómstundastarfinu frekar en þegar það er
úti að leik.
Hér á eftir verður þessum atriðum lýst nánar og fjallað um stöðu þeirra sem
standa fyrir félags- og tómstundastarfi fyrir börn og ungmenni.


Hafðu samband

Póstlisti


Þetta vefsvæði byggir á Eplica