29. janúar 2025

Yfirlýsing vegna verkfalls kennara og réttinda barna

Umboðsmaður barna hefur áhyggjur af yfirvofandi verkfalli kennara sem á að hefjast að nýju 1. febrúar nk.

Staða kjaraviðræðna aðildarfélaga Kennarasambands Íslands við Samband íslenskra sveitarfélaga annars vegar og ríkið hins vegar veldur miklum vonbrigðum. Að óbreyttu munu verkföll kennara hefjast að nýju 1. febrúar. Boðuð hafa verið ótímabundin verkföll í 14 leikskólum og tímabundin verkföll í 7 grunnskólum. Þá má einnig reikna með að verkföll verði í framhaldsskólum og tónlistarskólum, en upplýsingar um fyrirkomulag þeirra verkfalla liggja ekki fyrir. Það er sérstaklega þungbært að verkfallsaðgerðir komi aftur til með að bitna á börnum í þeim fjórum leikskólum sem voru í verkfalli frá 29. október til 29. nóvember. Þá hefur umboðsmaður barna miklar áhyggjur af börnum sem eru í viðkvæmri stöðu m.a. fötluðum börnum og börnum sem búa við erfiðar félagslegar aðstæður. Fyrir sum börn eru leikskólar og grunnskólar griðastaðir sem veita öryggi sem þau njóta ekki annarsstaðar. Þá verður ekki litið fram hjá því að þó verkfallsrétturinn sé óumdeildur eru börn skólaskyld og þau eiga stjórnarskrárvarinn rétt til menntunar og fræðslu.

Það er mikilvægt að hugað verði sérstaklega að stöðu fatlaðra barna og að komið verði í veg fyrir að þessi viðkvæmi hópur barna verði fyrir þjónusturofi. Umboðsmaður barna tekur undir ályktun Umhyggju, Þroskahjálpar, Einhverfusamtakanna, Sjónarhólls og ÖBÍ frá 28. janúar varðandi stöðu fatlaðra barna í fyrirhuguðum verkfallsaðgerðum.

Það er grundvallarhagsmunamál fyrir öll börn að deiluaðilar leiti allra leiða við að ná sáttum og að samningar náist sem tryggja stöðugleika í skólakerfinu.  


Hafðu samband

Póstlisti


Þetta vefsvæði byggir á Eplica