22. apríl 2022

Réttindi barna í stafrænu umhverfi

Málþingið "Réttindi barna í stafrænu umhverfi" verður haldið á Grand hótel föstudaginn 29. apríl klukkan 8:30. 

Umboðsmaður barna, Persónuvernd og Fjölmiðlanefnd standa fyrir málþinginu Réttindi barna í stafrænu umhverfi - nýjar leiðbeiningar fyrir foreldra, ábyrgðaraðila og starfsfólk skóla- og frístundastarfs

Málþingið verður haldið á Grand hótel föstudaginn 29. apríl nk. og byrjar klukkan 8:30. Áætlað er að því ljúki klukkan 10:15 með kaffiveitingum. 

Á málþinginu verða nýjar leiðbeiningar fyrir foreldra, ábyrgðaraðila og starfsfólk skóla- og frístundastarfs Börn, samfélagsmiðlar og netið kynntar. 

Malthing-um-rettindi-barna-i-stafraenu-umhverfi

Dagskrá:

Kl. 08:30 Salvör Nordal, umboðsmaður barna - Börn, samfélagsmiðlar og netið. Leiðbeiningar fyrir foreldra og starfsfólk skóla- og frístundastarfs.

Kl. 08:45 Skúli Bragi Geirdal - um niðurstöður könnunar um miðlalæsi

Kl. 09:00 Unnur Sif Hjartardóttir, lögfræðingur og persónuverndarfulltrúi - Friðhelgi einkalífs barna í nútímasamfélagi.

Kl. 09:20 Steinunn Birna Magnúsdóttir, lögfræðingur hjá Persónuvernd - Hvernig tryggjum við persónuvernd barna.

Kl. 09:35 Pallborðsumræður með fulltrúum úr ráðgjafarhópi umboðsmanns barna - Umræðum stýrir Salvör Nordal, umboðsmaður barna

Kl. 10:15 Lok og kaffiveitingar

Málþingið verður tekið upp og birt á vefsíðum okkar að því loknu.


Hafðu samband

Póstlisti


Þetta vefsvæði byggir á Eplica