10. júní 2025

Ráðstefnan World Congress on Justice with Children

Í síðustu viku fór fram ráðstefnan World Congress on Justice with Children í Madríd. Hafdís Una lögfræðingur hjá umboðsmanni barna sótti ráðstefnuna.

Ráðstefnan World Congress on Justice with Children fór fram 2. - 4. júní 2025 í Madríd. Á ráðstefnunni var fjallað um barnvæna réttarvörslu og mikilvægi þess að bregðast við og koma í veg fyrir aukið ofbeldi og kerfisbundnar áskoranir sem börn verða fyrir innan réttarkerfisins og stofna öryggi þeirra í hættu. 

Hafdís Una lögfræðingur hjá embættinu sótti ráðstefnuna fyrir hönd embættisins, en umboðsmaður barna birti skýrslu um barnvæna réttarvörslu á Íslandi í mars síðastliðnum. Embættið hafði þá frá árinu 2024 unnið að úttekt og greiningu á íslensku réttarkerfi út frá hugmyndafræði barnvænnar réttarvörslu. 

E749928e-ae56-4e20-b738-a1f1df8de53f

Hafdís Una á ráðstefnunni

C57323b4-00d9-4b95-b42c-e6b87fcbfaa5

Ráðstefnan sett af stað

Á ráðstefnunni skipulagði embætti umboðsmanns barna á Íslandi vinnustofu um reynslu og upplifanir barna af réttarkerfinu. Tilgangur vinnustofunnar var að skapa umræðuvettvang fyrir umboðsmenn barna um aðgengi og reynslu barna af réttarkerfinu, ásamt því að varpa ljósi á hvað þarf að bæta í málaflokknum innan hvers lands. Umboðsmenn barna frá Króatíu, Litháen, Chile, ásamt Hafdísi Unu tóku þátt í vinnustofunni. Þar sköpuðust áhugaverðar umræður, en samráð milli landa er mikilvægur vettvangur fyrir umboðsmenn barna að deila reynslu sinni og vinna að úrbótum.

8948759a-9765-426e-a8df-fe809310c5c1

Þátttakendur á vinnustofu um reynslu og upplifanir barna af réttarkerfinu



Hafðu samband

Póstlisti


Þetta vefsvæði byggir á Eplica