5. nóvember 2009

Ráðstefna um skóla án aðgreiningar

Umboðsmaður barna vill vekja athygli á ráðstefnu um skólastefnuna skóli án aðgreiningar sem haldin verður fimmtudaginn 19. nóvember kl. 13.15–16.30. Ráðstefnan verður haldin í fyrirlestrarsalnum Skriðu í húsnæði Menntavísindasviðs Háskóla Íslands.

Skóli án aðgreiningar:
Áskoranir og hindranir. Kastljósi beint að starfsfólki í skólasamfélaginu

Rannsóknarstofa um skóla án aðgreiningar (RSÁA), í samvinnu við Menntavísindasvið Háskóla Íslands og Kennarasamband Íslands, stendur fyrir annarri ráðstefnu af þremur um skólastefnuna skóli án aðgreiningar fimmtudaginn 19. nóvember næstkomandi kl. 13.15–16.30. Ráðstefnan verður haldin í fyrirlestrasalnum Skriðu í húsnæði Menntavísindasviðs Háskóla Íslands. Markmiðið með ráðstefnunni er að ígrunda skólastefnuna skóli án aðgreiningar og reynslu kennara og annars starfsfólks skólanna.

Þetta er önnur ráðstefnan af þremur sem rannsóknarstofan stendur að um skólastefnuna skóli án aðgreiningar. Boðið er til samræðu um sýn, aðstæður og vinnubrögð starfsfólksins og gildi þess að styðja það, mennta og efla. Meðal annars mun ráðstefnan fjalla um kennaramenntun og menntastefnuna skóli án aðgreiningar. Þriðja ráðstefnan sem fyrirhuguð er á vormisseri mun fjalla um  reynslu nemenda  af námi við skóla sem leitast við að fylgja menntastefnunni.

Dagskrá

13.15  Setning
Ráðstefnustjóri Oddný Sturludóttir, borgarfulltrúi

13.25  Ávarp
Katrín Jakobsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra

13.35  Starfsfólkið: lykill að framtíð nemenda skóla margbreytileikans?
Hrund Logadóttir, doktorsnemi við Menntavísindasvið Háskóla Íslands

13.55  Að hafa sjón en enga sýn
Ágúst Ólason, aðstoðarskólastjóri Norðlingaskóla

14.10  Skóli fyrir alla þýðir kennarar fyrir alla
Elna Katrín Jónsdóttir, varaformaður Kennarasambands Íslands

14.25  Skóli án aðgreiningar og áherslur í kennaramenntun
Anna Kristín Sigurðardóttir, deildarforseti Kennaradeildar Menntavísindasviðs Háskóla Íslands

14.40  Nýr skóli – „nýtt eða notað“ starfsfólk?
Ágúst Frímann Jakobsson, skólastjóri Naustaskóla

14.55–15.25 Kaffi

15.25  Sérfræðiþjónusta við skóla: Einstaklingsmiðuð greiningarárátta?
Þorgeir Magnússon, sálfræðingur og deildarstjóri á Þjónustumiðstöð Árbæjar og Grafarholts

15.40  ¬Skólamenning og fjölbreyttir starfsmannahópar í skólum
Hanna Ragnarsdóttir, deildarforseti Uppeldis- og menntunarfræðideildar Menntavísindasviðs Háskóla Íslands

16.00–16.30  Almennar umræður í sal undir stjórn Ólafs Páls Jónssonar, lektors við Menntavísindasvið Háskóla Íslands og Hermínu Gunnþórsdóttur, aðjúnkts við Háskólann á Akureyri


Ráðstefnan er öllum opin og þátttakendum að kostnaðarlausu.

Vefsíða Rannsóknarstofu um skóla án aðgreiningar.

Ráðstefnan er styrkt af Menntavísindasviði Háskóla Íslands og Kennarasambandi Íslands.


Hafðu samband

Póstlisti


Þetta vefsvæði byggir á Eplica