11. mars 2008

Ráðstefna um eflingu foreldrahæfni

Félags- og tryggingamálaráðuneytið og samstarfsnefnd ráðuneyta um framkvæmd aðgerðaáætlunar í málefnum barna efna til ráðstefnu 17. mars næstkomandi. Tilgangurinn er að kynna ólíkar aðferðir til að efla foreldrafærni.

Eftirfarandi er fréttatilkynning frá félags- og tryggingamálaráðuneytinu frá 4. mars 2008:

Undanfarin ár hefur áhersla á eflingu foreldrahæfni með fjölbreyttri uppeldisfræðslu og þjálfun foreldra eflst á Vesturlöndum. Vitneskju um áhrif uppeldisaðferða á geðheilsu og þroska barna með mismunandi þarfir og á ólíkum aldri hefur fleygt fram. Rannsóknir hafa lagt grunn að þróun markvissra aðferða til að þróa og virkja hæfni foreldra á þessu sviði. Á meðal þeirra eru aðferðir á borð við MST (Multisystematic Treatment), PMT (Parent Management Training) og Triple P (Positive Parenting Programme).

Í aðgerðaáætlun ríkisstjórnarinnar til að styrkja stöðu barna og ungmenna er kveðið á um fyrirhugaðar aðgerðir, meðal annars á grundvelli tilmæla Evrópuráðsins (2006) nr. 19 um aðgerðir til efla foreldrahæfni. Áætlunin tiltekur sérstaklega foreldra fyrsta barns, foreldra barna með sérþarfir og foreldra unglinga. Af þessu tilefni efnir félags- og tryggingamálaráðuneytið og samráðsnefnd ráðuneytanna um framkvæmd aðgerðaáætlunarinnar til ráðstefnu 17. mars nk. Tilgangurinn er að kynna ólíkar aðferðir til eflingar foreldrafærni, hérlendis sem erlendis.

Aðalfyrirlesarar verða:

  • Dr. Alan Ralph, prófessor við University of Queensland, Brisbane, Ástralíu, en hann mun fjalla um Triple P-aðferðina til eflingar foreldrafærni, en hún hefur öðlast útbreiðslu langt út fyrir Ástralíu, meðal annars í Evrópu og Kanada.
  • Björn Arnesen félagsráðgjafi, frá Kompetansesenter for Atferd, Þrándheimi, Noregi, en hann mun meðal annars greina frá reynslu Norðmanna af ólíkum aðferðum til eflingar foreldrahæfni, meðal annars Webster-Stratton-uppeldisaðferðinni, the Incredible Years, ásamt MST og PMT.

Þá verða fluttir fyrirlestrar um starf á þessu sviði hérlendis, meðal annars innleiðingu MST á Íslandi, PMT í Hafnarfirði, SOS-uppeldisfræðsluna í Reykjanesbæ ásamt öðrum aðferðum til eflingar foreldrahæfni á vegum Miðstöðvar heilsuverndar barna og ÓB Ráðgjafar ehf.

Dagskrá

9.00–9.15       Setning og ávarp Jóhönnu Sigurðardóttur, félags- og tryggingamálaráðherra

9.15–10.15     Dr. Alan Ralph, prófessor við Háskólann í Queensland, Ástralíu: „Intergrating universal and targeted parenting interventions using the Triple P – Positive Parenting Programme“

10.15–10.40   Kaffi

10.40–11.10   Dr. Alan Ralph: Framhald

11.10–12.00   Björn Arnesen, Cand Socion, MKA í Þrándheimi: „The Incredible Years Teachers and Parent Training Program – Challenges and benefits of using evidence based programs“

12.00–13.00   Hádegishlé

13.00–13.30   Björn Arnesen: „Norwegian reflections from using family based intervention programs“

13.30–13.50   Halldór Hauksson yfirsálfræðingur, Barnaverndarstofu: Innleiðing MST á Íslandi

13.50–14.10   Margrét Sigmarsdóttir forstöðusálfræðingur, Hafnarfirði: Foreldrafærniþjálfunin PMT

14.10–14.30   Gylfi Jón Gylfason forstöðusálfræðingur, Reykjanesbæ: Uppeldisfræðslan SOS 

14.30–14.50    Geir Gunnlaugsson, barnalæknir og forstöðumaður Miðstöðvar heilsuverndar barna: „Uppeldi sem virkar – færni til framtíðar“

14.50–15.10   Ólafur Grétar Gunnarsson, ÓB Ráðgjöf ehf.: „Barnið boðið velkomið“

15.10–15.30   Kaffi

15.30–17.00   Panell og almennar umræður

Ráðstefnustjóri: Bragi Guðbrandsson, forstjóri Barnaverndarstofu og formaður samráðsnefndar ráðuneytanna um aðgerðaáætlun ríkisstjórnarinnar í málefnum barna.

Ráðstefnan er öllum opin og verður haldinn á Grand Hótel Reykjavík kl. 9–17 mánudaginn 17. mars 2008.

Unnt er að skrá sig með tölvupósti (kristinn.ragnar.hallbergsson@fel.stjr.is) eða í síma 545 8100 fyrir kl. 12.00 föstudaginn 14. mars 2008.


Hafðu samband

Póstlisti


Þetta vefsvæði byggir á Eplica