23. september 2022

Ráðstefna og ársfundur umboðsmanna í Evrópu

Samtök umboðsmanna barna í Evrópu (ENOC) héldu sína árlegu ráðstefnu og ársfund í Hörpu í Reykjavík dagana 19.-21. september sl. 

Samtök umboðsmanna barna í Evrópu (ENOC) héldu sína árlegu ráðstefnu og ársfund í Hörpu í Reykjavík dagana 19.-21. september sl. Flest embætti umboðsmanna barna í Evrópu eiga aðild að samtökunum og eru þau afar mikilvægur vettvangur fyrir alþjóðlega umræðu og samstarf um réttindi barna. Ráðstefnuna sóttu um 90 fulltrúar frá rúmlega 30 embættum umboðsmanna barna í Evrópu.

Umhverfisréttlæti út frá réttindum barna

Meginþema ráðstefnunnar í ár var umhverfisréttlæti út frá réttindum barna og var yfirskrift hennar Shaping the Future: Children‘s Rights in a Climate Crisis.

Meðal fyrirlesara á ráðstefnunni voru Sævar Helgi Bragason, umhverfisfræðari, Sigurlaug Arnardóttir frá Landvernd og Laura Lundy, prófessor og einn fremsti sérfræðingur í þátttöku barna sem kynnti skýrslu sem unnin var fyrir ENOC í tilefni ráðstefnunnar. Sævar Helgi fjallaði um leiðir til að valdefla og fræða börn um umhverfismál á áhrifaríkan máta og Sigurlaug kynnti verkefnið Ungt umhverfisfréttafólk (Young reporters for the Enviroment) sem er vettvangur fyrir ungt fólk m.a. til að kynna sér umhverfismál með gagnrýnum hætti. Nokkur ungmenni kynntu sín verkefni og Jökull Jónsson, tónlistarmaður og loftslagsaktivisti flutti nokkur af sínum lögum um umhverfismál við góðar undirtektir, meðal þeirra laga sem hann flutti var Aðgerðir strax!

Þátttaka ungmenna

Áhersla var lögð á að fjalla um rétt barna til þátttöku og áhrifa í stefnumótun og ákvarðanatöku í umhverfis- og loftslagsmálum en ekki síður á reynslu barna af því að taka þátt í baráttunni fyrir umhverfi og náttúru í einstökum Evrópuríkjum sem og á alþjóðavettvangi.

Enoc-2022-enya

Á vegum samtaka evrópskra umboðsmanna starfar einnig ENYA, evrópsk samstarfsnet ráðgjafarhópa barna, og taka fulltrúar ENYA mikinn þátt í starfi samtakanna, ekki síst á árlegri ráðstefnu ENOC. Að þessu sinni tóku 15 ungmenni þátt frá fjölmörgum Evrópulöndum. Þátttaka þeirra fólst meðal annars í að móta og kynna tillögur sínar um umhverfisréttlæti og ræddu þau einnig hvernig umboðsmenn barna og stjórnvöld geta stutt betur við börn í baráttu sinni.

Regína Jensdóttir, yfirmaður barnaréttardeildar Evrópuráðsins flutti erindi þar sem farið var yfir stefnu Evrópuráðsins í málefnum barna. Svandís Svavarsdóttir, matvælaráðherra ávarpaði ráðstefnuna og kynnti loftslagsstefnu Íslands. Ráðherra tók einnig þátt í pallborðsumræðum með fulltrúum úr ráðgjafarhópi umboðsmanns barna og ungmennaráði heimsmarkmiðanna, þar sem fulltrúarnir komu á framfæri áhyggjum sínum af loftslagsbreytingum.

Enoc-2022-svandis-radgjafarhopur

Ársfundur umboðsmanna barna haldinn í Iðnó

Ársfundur ENOC fór fram miðvikudaginn 21. september í Iðnó. Á ársfundinum tók Salvör Nordal, umboðsmaður barna við formennsku samtakanna, en hún var kosinn formaður stjórnar ENOC á síðasta ári og hefur setið í stjórn samtakanna undanfarin ár. Á fundinum var einnig kosinn nýr formaður sem tekur við á ársfundi samtakanna sem fer fram í Belgíu að ári liðnu.


Hafðu samband

Póstlisti


Þetta vefsvæði byggir á Eplica