Réttindi hinsegin barna í brennidepli á ráðstefnu ENOC
Árleg ráðstefna Evrópusamtaka umboðsmanna barna (ENOC) fór fram í Barselóna á Spáni dagana 30. september og 1. október. Þetta var í þrítugasta sinn sem ráðstefnan var haldin og að þessu sinni voru réttindi hinsegin barna í brennidepli. Yfirskrift hennar var Safeguarding and Advancing the Rights of LGBTQIA+ Children and Young People.
Á ráðstefnunni voru kynntar niðurstöður könnunar ENOC á stöðu hinsegin barna í aðildarlöndum samtakanna. Einnig var fjallað um aðgerðir og úrræði til að bæta stöðu hinsegin barna og tryggja að réttindi þeirra séu virt í reynd.
Salvör Nordal, umboðsmaður barna, sótti ráðstefnuna ásamt Sigurveigu Þórhallsdóttur, yfirlögfræðingi hjá embættinu, Nönnu Birgisdóttur, sérfræðingi hjá embættinu, og Axel Bjarka úr ráðgjafarhópi umboðsmanns barna.
Þátttaka barna skipaði mikilvægan sess á ráðstefnunni. Fulltrúar ENYA, samstarfsvettvangs barna á vegum ENOC, kynntu tillögur sínar um réttindi hinsegin barna. Tillögurnar byggja á vinnu barna frá tólf löndum og svæðum í Evrópu. Börnin unnu fyrst að málefninu hvert í sínu landi en komu síðan saman á fundi ENYA í Dublin í sumar til að móta sameiginlegar tillögur.
Í tillögunum er meðal annars lögð áhersla á menntun og fræðslu, öryggi, inngildingu og virðingu fyrir réttindum hinsegin barna. Þær verða hluti af áframhaldandi vinnu ENOC að réttindum hinsegin barna.
Axel Bjarki var fulltrúi
ráðgjafarhóps umboðsmanns barna í ENYA-verkefninu og tók virkan þátt í að móta
og kynna tillögurnar. Hann hefur starfað með ráðgjafarhópnum undanfarin ár og
komið að fjölbreyttum verkefnum á sviði réttinda barna. Umboðsmaður barna
þakkar Axel fyrir öflugt og mikilvægt framlag til verkefnisins.
