16. júní 2025

Ráðstefna á vegum norrænu velferðarmiðstöðvarinnar í Helsinki

Þann 3. júní hélt frítt föruneyti á vegum umboðsmanns barna á ráðstefnu í Helsinki á vegum norrænu velferðarmiðstöðvarinnar um réttindi barna sem bar heitið The right of children and young people to be heard, seen, and involved in the Nordic region.

Tveir fulltrúar úr ráðgjafarhópi umboðsmanns barna, þau Agla Björk og Baldvin Týr, ásamt starfsfólki umboðsmanns barna og Ívari Mána sóttu dagana 3.-6. júní ráðstefnu norrænu velferðarmiðstöðvarinnar um réttindi barna. Ráðstefnan var haldin í Helsinki og markaði lok fjögurra ára verkefnis um þátttöku barna og ungmenna í Covid faraldrinum. 

Bæði Agla Björk og Baldvin tóku þátt í vinnustofum eftir erindi á ráðstefnunni þar sem fulltrúar frá Norðurlöndunum og Eystrasaltslöndunum deildu reynslu um þátttöku barna í Covid-faraldrinum og þau tól sem börn hafa til þess vera virkir þátttakendur. Þá tók Agla Björk þátt í pallborðsumræðu fyrir hönd barna og ungmenna þar sem hún ræddi um mikilvægi nemendaráða í skólum fyrir lýðræðislega þátttöku barna. Þau stóðu sig bæði með prýði.

Salvör Nordal umboðsmaður barna sat einnig í pallborði ásamt öðrum umboðsmönnum barna á Norðurlöndunum og tók þátt í umræðu um þátttöku barna á krísutímum. Þar sagði hún m.a. frá Grindarvíkurfundinum sem umboðsmaður barna hélt með börnum frá Grindavík í byrjun árs 2024 eftir að bærinn var rýmdur.

495263341_562361626924339_1044774226226378856_n

Föruneyti umboðsmanns barna á fyrsta degi ráðstefnunnar

494825314_1917789662091247_5475513921837650786_n

Agla Björk í paneli á ráðstefnunni

494688233_1021377623439901_600261203585420127_n

Vettvangsferð í Helsinki

494817531_915116067396372_463021545174572017_n

Agla Björk og Baldvin Týr á ráðstefnunni

494688486_2540865116246023_4836372075628611948_n

Agla Björk, Baldvin Týr, Ívar Máni, Sigurveig og Guðlaug Edda fyrir utan íslenska sendiráðið í Helsinki


Hafðu samband

Póstlisti


Þetta vefsvæði byggir á Eplica