Opnun Lækjarbakka í Gunnarsholti
Salvör Nordal, umboðsmaður barna, og Sigurveig Þórhallsdóttir, yfirlögfræðingur embættisins, sóttu opnun meðferðarheimilis Lækjarbakka í Gunnarsholti síðastliðinn föstudag. Meðferðarheimilið Lækjarbakki, sem áður var stafrækt að Rangárvöllum, var lokað í apríl 2024 vegna myglu í húsnæðinu.
Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, opnaði meðferðarheimilið á ný í nýju húsnæði í Gunnarsholti, en úrræðið er ætlað drengjum á aldrinum 14 til 28 ára sem þurfa framhaldsmeðferð vegna hegðunar- og vímuefnavanda. Dögg Þrastardóttir, forstöðumaður Lækjarbakka, stýrði dagskránni og þær Ólöf Ásta Farestveit, forstjóri Barna- og fjölskyldustofu, og Margrét Harpa Guðsteinsdóttir, varaoddviti sveitarstjórnar Rangárþings ytra, fluttu ávörp.
Þá fengu gestir kynningu um daglegt starf meðferðarheimilisins og þeim boðin skoðunarferð um húsnæðið. Umboðsmaður barna fagnar því að Lækjarbakki sé tekinn til starfa á ný eftir tveggja ára bið og bindur vonir við að úrræðið gagnist þeim drengjum sem þurfa á auknum stuðningi að halda. Embættið hefur á undanförnum árum ítrekað bent stjórnvöldum á að lokun sérhæfðra úrræða fyrir börn og ungmenni með fjölþættan vanda geti haft alvarleg áhrif á stöðu þeirra, en skortur á viðeigandi meðferðarúrræðum hefur verið viðvarandi áskorun í málaflokknum á undanförnum árum.