29. nóvember 2017

Opinn fundur um mannréttindi

Stýrihópur stjórnarráðsins um mannréttindi stendur fyrir opnum fundi í Veröld, Húsi Vigdísar Finnbogadóttur þann 30. nóvember næstkomandi frá klukkan 14:00-16:00. Á fundinum verða niðurstöður UPR-ferlisins (Universal Periodic Review) kynntar auk almennrar umræðu um störf stýrihópsins, stöðu mannréttinda á Íslandi og næstu skref.

Inga Huld Ármann og Kristján Helgason, ungmenni úr Ráðgjafarhóp umboðsmanns barna verða á fundinum og mun Inga Huld flytja þar stutt erindi og taka þátt í pallborðsumræðum. 

Dagskrá fundarins má sjá hér fyrir neðan. 

Dagskrá: 
14:00  Fulltrúi dómsmálaráðuneytisins opnar fundinn.
14:10  Ragna Bjarnadóttir, skrifstofustjóri í dómsmálaráðuneytinu kynnir niðurstöður UPR ferilsins og nýstofnaðan stýrihóp stjórnarráðsins um mannréttindi.
14:30  Margrét Steinarsdóttir frá Mannréttindaskrifstofu Íslands kynnir skuggaskýrslu. 
14:50  Þuríður Harpa Sigurðardóttir frá ÖBÍ. 
15:00  Inga Huld Ármann fulltrúi ungmenna frá ungmennaráði Umboðsmanns barna. 
15:10  Pallborðsumræður (Þuríður Harpa Sigurðardóttir fulltrúi ÖBÍ, Margrét Steinarsdóttir fulltrúi Mannsréttindaskrifstofu Íslands, Rúnar Helgi Haraldsson fulltrúi Fjölmenningarsetursins, Árni Múli Jónasson fulltrúi Þroskahjálpar, Inga Huld Ármann  fulltrúi ungmenna, Kittý Anderson fulltrúi frá samtökunum 78 og Ragna Bjarnadóttir fulltrúi UPR-hópsins)

Fundarstjórar fundarins eru Rún Knútsdóttir og Héðinn Unnsteinsson.

3 Hagsmunir Barna I Forgang

Hafðu samband

Póstlisti

Þetta vefsvæði byggir á Eplica