16. desember 2009

Opið hús hjá umboðsmanni barna á morgun, fimmtudag

Á morgun, fimmtudaginn 17. desember, milli kl. 10:30 og 12 verður opið hús hjá umboðsmanni barna.

Opið hús hjá umboðsmanni barna á morgun, fimmtudaginn 17. desember milli kl. 10:30 og 12

Þorvaldur Þorsteinsson rithöfundur les stutta sögu og fulltrúar úr ráðgjafarhóp umboðsmanns barna lesa upp úr bókinni Hvernig er að vera barn á Íslandi, sem umboðsmaður barna gaf út á dögunum. Bókin verður til sölu á staðnum á 2.000 kr.

Boðið verður upp á heitt súkkulaði og smákökur.

Allir hjartanlega velkomnir.

Starfsfólk embættis umboðsmanns barna
Laugavegi 13, 2. h., gengið inn frá Smiðjustíg


Hafðu samband

Póstlisti


Þetta vefsvæði byggir á Eplica