29. ágúst 2012

Námskrárdrög til umsagnar - Frestur til 7. september

Á vef menntamálaráðuneytisins eru birt drög að námssviða- og námsgreinahluta nýrrar aðalnámskrár grunnskóla. Hagsmunaaðilar eru hvattir til að bregðast við og senda inn athugasemdir um drögin á netfangið postur@mrn.is.is í síðasta lagi 7. september 2012.

Á vef menntamálaráðuneytisins eru birt drög að námssviða- og námsgreinahluta  nýrrar aðalnámskrár grunnskóla.

Skipaðar voru ritnefndir um hvert greinasvið á vegum ráðuneytisins til að endurskoða gildandi aðalnámskrá með hliðsjón af nýrri menntastefnu sem birtist í almennum hluta frá  2011. Í ritnefndum sátu fulltrúar úr háskólasamfélaginu, aðilar frá fagfélögum kennara og aðrir hagsmunaaðilar. Til viðmiðunar var hafður rammi um námsgreinar og námssvið sem birtur er í almennum hluta aðalnámskrár.

Ráðuneytið telur mikilvægt að fá viðbrögð við drögunum áður en gengið verður frá þeim til útgáfu. Hagsmunaaðilar eru hvattir til að bregðast við og senda inn athugasemdir um drögin á netfangið postur@mrn.is.is í síðasta lagi 7. september 2012.

Námskrárnar verða gefnar út í haust og hafa skólar þá tvö ár til að innleiða að fullu aðalnámskrá grunnskóla. Ný tilhögun námsmats verður notuð í fyrsta sinn við brautskráningu nemenda úr 10. bekk vorið 2015.

Smellið hér til að skoða drög að nýjum námskrám fyrir grunnskóla.


Hafðu samband

Póstlisti


Þetta vefsvæði byggir á Eplica