13. nóvember 2007

Námskeið um systkini fatlaðra og langveikra barna

Don Meyer heldur námskeið um systkini fatlaðra og langveikra barna á vegum Umhyggju í smastarfi við Systkinasmiðjuna, KHÍ, Barnaspítala Hringsins og Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins. Námskeiðið er haldið í Skriðu í KHÍ, föstudaginn 16. nóvember 2007 kl. 9.00-12.30 fyrir fagfólk og kl. 13.00-16.00 fyrir foreldra og aðra aðstandendur. 

Dagskrá
kl. 8.30 - 9.00 Móttaka og skráning þátttakenda
kl. 9.00 -10.30 Sérstaða og tækifæri systkina frá sjónarhóli fagfólks.
Kaffihlé
kl. 10.50-12.30 Sérstaða og tækifæri systkina frá sjónarhóli fagfólks.
Hádegishlé
kl. 12.30-13.00 Móttaka og skráning þátttakenda
kl. 13.00-14.30 Sérstaða og tækifæri systkina frá sjónarhóli foreldra og annara aðstandenda
Kaffihlé
kl. 14.50-16.00 Sérstaða og tækifæri systkina frá sjónarhóli foreldra og annara aðstandenda.

Don Meyer er stofnandi og stjórnandi the Siblings Support Project í Seattle, sem nær yfir öll ríki Bandaríkjana. Hann stjórnar fræðslusmiðjum um málefni systkina langveikra og fatlaðra barna fyrir foreldra og fagfólk í Bandaríkjunum og Kanada, þjálfunarnámskeiðum um stofnun systkinasmiðja og fræðslu- og stuðningsnámskeiðum fyrir systkini fatlaðra og langveikra. Don Meyer hefur gefið út margar bækur um þetta málefni og haldið fyrirlestra og námskeið víða um heim.

Systkinasmiðjan hér á landi hóf starfsemi sína árið1998 og er fyrirmynd hennar meðal annars sótt í smiðjur Don Meyers. Markmið Systkinasmiðjunnar er að gefa sytkinum barna með sérþarfir tækifæri til að hitta önnur börn og deila reynslu sinni. Heimasíðan er www.verumsaman.is.

Námskeiðin fara fram á ensku. Námskeiðsgjald er aðeins 1.500 kr. og er greitt við innganginn.

Skráning á www.greining.is. Einnig er hægt að skrá sig við innganginn 16. nóvember.

Hafðu samband

Póstlisti

Þetta vefsvæði byggir á Eplica