18. september 2007

Námsdagar um foreldra í vanda og vanrækt börn

Þerapeia ehf. í samvinnu við Landlæknisembættið stendur fyrir námsdögum dagana 27. og 28. september nk. um foreldra í vímuefnavanda og vanrækt börn. Ráðstefnan fer fram í fyrirlestrasal Þjóðminjasafnsins við Suðurgötu og stendur kl. 9:15-16:00 báða dagana.

Þerapeia ehf. í samvinnu við Landlæknisembættið stendur fyrir námsdögum dagana 27. og 28. september nk. um foreldra í vímuefnavanda og vanrækt börn. Ráðstefnan fer fram í fyrirlestrasal Þjóðminjasafnsins við Suðurgötu og stendur kl. 9:15-16:00 báða dagana.

Fjallað verður um tvö meginefni á námsdögunum. Hið fyrra er vímuefnaneysla foreldra og afleiðingar fyrir börn. Farið verður yfir skaðlegar afleiðingar vímuefnaneyslu foreldra, einkanlega þó mæðra á meðgöngu, fyrir uppvöxt og sálrænan og líkamlega þroska barna.

Svo verður fjallað um forvarnir, greiningu og meðferð og rætt um skilvirkar og árangursríkar leiðir til að ná til barna og foreldra í þessum áhættu­hópum. Sérstök áhersla verður lögð á það hvernig megi fyrirbyggja vanrækslu, sem af vímu­efnaneyslu foreldra hlýst og á hvern hátt megi styrkja illa stadda foreldra í umönnunarhlutverki sínu.

Ráðstefnan er sérstaklega ætluð fagfólki sem vinnur með börn og foreldra í þessum áhættuhópum hvort heldur er innan heilbrigðis-, félagsmála- eða skólakerfisins eða innan kirkjunnar.

Fyrirlesarar verða dr. Kari Killén prófessor, NOVA (Norwegian Institute of Social Research), og dr. May Olofsson, yfirlæknir göngudeildar á Rigs­hospital­et í Kaupmannahöfn. Þær eru báðar með mikla vísindalega og klíníska reynslu  á þessu sviði og eru eftirsóttir fyrirlesarar víða um heim.

Fyrirlestrarnir verða haldnir á ensku og umræður fara fram á ensku og Norðurlandamálum. Fjöldi þátttakenda  er takmarkaður.

Skráning og upplýsingar í síma 562 3990 milli kl. 15 og 17 eða með tölvupósti til terapeia@simnet.is


Hafðu samband

Póstlisti


Þetta vefsvæði byggir á Eplica