18. ágúst 2011

Mikilvægi foreldra í upphafi skólaárs

Nú þegar skólarnir hefja göngu sína er brýnt að foreldrar séu til staðar fyrir börnin, sérstaklega þau sem eru að hefja grunnskólagöngu í 1. bekk, byrja í nýjum skóla, í nýjum bekk eða takast á við aðrar breytingar.

Foreldrar mikilvægustu persónur í lífi barna og öll börn eiga rétt á góðum foreldrum. Nú þegar skólarnir hefja göngu sína er brýnt að foreldrar séu til staðar fyrir börnin, sérstaklega þau sem eru að hefja grunnskólagöngu í 1. bekk, byrja í nýjum skóla, í nýjum bekk eða takast á við aðrar breytingar. Þá er mikilvægt að fylgjast með líðan barna, ræða við þau og sýna skólagöngu þeirra áhuga. Foreldrar þurfa að vera öruggir með það að börnin viti hvert þau geti leitað ef þau þurfa aðstoð í skólanum og vera sjálfir tilbúnir að leggja sitt af mörkum til að skólagangan gangi sem best.

Í júní sl. var grunnskólalögum breytt þannig að við hefur bæst ný grein um skólabrag (nr. 30). Þar er í 1. og 2. mgr. lögfest skylda foreldra, jafnt sem skólastjóra og kennara, að eiga samráð um skólagönguna:

 
Öllum aðilum skólasamfélagsins ber að leggja sitt af mörkum til þess að stuðla að og viðhalda góðum starfsanda og jákvæðum skólabrag.
Skólastjórum og kennurum ber að eiga samráð við foreldra um hegðun, líðan og samskipti barna þeirra. Foreldrum ber með sama hætti að eiga samráð við skólann um skólagöngu barna sinna. Sama á við um aðra forsjáraðila barna í viðkomandi skóla.
 
 
Brýnt er að foreldrar gefi sér tíma til að fylgja börnum sínum vel eftir og taka virkan þátt í nýjum viðfangsefnum þeirra á haustin. Fyrir þá foreldra sem ekki geta tekið frí frá vinnu fyrir börn sín má benda á reglur um foreldraorlof.
 
Að byrja í grunnskóla
Fyrir foreldra þeirra barna sem nú eru að hefja grunnskólagöngu í fyrsta sinn vill umboðsmaður benda á eftirfarandi atriði.
 
Vonandi er tilhlökkun og eftirvænting efst í huga flestra barna en fyrstu skóladögunum getur jafnframt fylgt ákveðinn óróleiki og kvíði fyrir nýju skólaumhverfi. Þó flest börn séu vön skólagöngu í leikskóla er umhverfi  grunnskólans nokkuð frábrugðið leikskólanum. Í grunnskóla reynir meira á sjálfstæði nemenda og því mikilvægt að foreldrar leiðbeini börnum til að þau verði betur undir það búin að takast á við nýtt umhverfi.  Mikilvægt er að foreldrar ræði við börnin um þær reglur sem gilda almennt í samskiptum innan skólans eins og að fara að fyrirmælum, rétta upp hönd og koma vel fram við alla. Áður en byrjað er í skóla er einnig  gott að börnin kunni að klæða sig úr og í föt sjálf, reima skóna og fara sjálf á klósettið.
 
Á heimasíðu Umferðarstofu er að finna ýmis ráð er varða umferðaröryggi barna á leið í og úr skóla, sjá t.d. hér. Mikilvægt er að foreldrar velji örugga gönguleið fyrir börnin áður en þau byrja í skólanum og gangi með þeim nokkra daga áður en skólinn hefst og eftir að hann byrjar.
 
Á vefsíðu Heimilis og skóla er að finna ýmis góð ráð um samstarf foreldra og skóla , sjá hér.

Hafðu samband

Póstlisti


Þetta vefsvæði byggir á Eplica