27. júní 2006

Mega börn gæta barna?

Umboðsmaður barna  mælir með að foreldrar leyfi börnunum að njóta æskunnar - í öruggum höndum þeirra sem valda því að gæta þeirra.

Vinna unglinga getur verið uppbyggjandi og góður undirbúningur fyrir lífið en hins vegar geta of erfið og ábyrgðarmikil störf valdið skaða.   Umboðsmaður barna  mælir með að foreldrar leyfi börnunum að njóta æskunnar - í öruggum höndum þeirra sem valda því að gæta þeirra.  Slys á heimilum eru meðal algengustu slysa á Íslandi og verða flest í aldurshópnum 0-4 ára. Ekki ætti að fela barni að gæta annars barns nema undir eftirliti fullorðinna. 

 Um vinnu barna og unglinga eru ákvæði í lögum nr. 46/1980 um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum og reglugerð nr. 426/1999 um vinnu barna og unglingaVinnueftirlitið hefur eftirlit með því að lögunum og reglunum sé framfylgt.  Tilgangurinn með þessum reglum er að koma í veg fyrir að börn vinni störf sem geta verið þeim hættuleg andlega og líkamlega.  Í reglunum eru tekin dæmi um störf sem unglingar í aldurshópunum yngri en 13 ára, 13-14 ára og 15 ára og eldri mega vinna en barnagæsla er ekki þar meðtalin.  Að bera ábyrgð á lífi og líðan lítilla barna er mjög ábyrgðarmikið starf, sem getur valdið þeim sem ekki eru búnir að taka út fullan þroska of miklu andlegu álagi.  Ef eitthvað kemur fyrir er ábyrgðin gífurleg.   Barnagæsla er  í eðli sínu ekki sambærileg við þau störf sem talin eru upp í fyrrnefndum reglum um vinnu barna og unglinga.

Vinnueftirlitið hefur túlkað fyrrnefndar reglur þannig að ekki sé heimilt að ráða börn yngri en 15 ára til að starfa við barnagæslu.

Hér á vef Lýðheilsustöðvar eru nokkrir góðir punktar sem vert er að hafa í huga fyrir foreldra sem hyggjast ráða til sín barnfóstru.

 


Hafðu samband

Póstlisti


Þetta vefsvæði byggir á Eplica