Mat á áhrifum á börn innan Stjórnarráðs Íslands
Niðurstöður úr spurningakönnun sem umboðsmaður barna sendi á ráðuneytin um innleiðingu mats á áhrifum á börn.
Í lok árs 2024 gaf mennta- og barnamálaráðuneytið út leiðarvísi um framkvæmd mats á áhrifum á börn, sem unninn var í samstarfi við embætti umboðsmanns barna. Leiðarvísinum er ætlað að styðja stjórnvöld við að leggja mat á áhrif ákvarðana á börn, m.a. við undirbúning lagafrumvarpa og reglugerða og við stefnumótun.
Umboðsmaður barna hefur lagt áherslu á að kerfisbundið mat á áhrifum á börn þurfi að vera hluti af ákvarðanatöku stjórnvalda. Samkvæmt 1. mgr. 3. gr. Barnasáttmálans skal það sem barni er fyrir bestu ávallt hafa forgang þegar gerðar eru ráðstafanir sem varða börn. Sú grundvallarregla er jafnframt áréttuð í 2. mgr. 1. gr. barnalaga nr. 76/2003. Til þess að unnt sé að leggja mat á hvað sé barni fyrir bestu þarf að greina hvaða áhrif fyrirhugaðar ákvarðanir og ráðstafanir kunna að hafa á börn. Kerfisbundið mat á áhrifum á börn er því mikilvægur liður í framkvæmd Barnasáttmálans.
Könnun á innleiðingu innan ráðuneytanna
Í byrjun árs 2026 sendi umboðsmaður barna könnun til allra ráðuneyta til að kanna hvernig innleiðingu mats á áhrifum á börn væri háttað og hvernig leiðarvísirinn hafi nýst.
Könnunin samanstóð af 14 spurningum. Spurt var að því m.a. hvort starfsfólk þekkti leiðarvísinn, hvort það hefði fengið fræðslu um framkvæmd mats á áhrifum á börn, hvort slíkt mat hefði verið innleitt innan ráðuneytisins og hvort leiðarvísirinn væri nýttur við framkvæmd þess.
Svörin sýna að talsverður munur er á milli ráðuneyta, bæði hvað varðar þekkingu á leiðarvísinum og hversu langt innleiðing kerfisbundins mats á áhrifum á börn er komin.
Þekking og fræðsla takmörkuð
Mennta- og barnamálaráðuneytið var eina ráðuneytið þar sem starfsfólk hafði bæði verið upplýst um leiðarvísinn og fengið sérstaka kynningu á framkvæmd mats á áhrifum á börn.
Starfsfólk dómsmálaráðuneytisins, heilbrigðisráðuneytisins, fjármálaráðuneytisins og forsætisráðuneytisins hafði fengið upplýsingar um tilvist leiðarvísisins en ekki sérstaka kynningu á framkvæmd matsins. Í öðrum ráðuneytum hafði starfsfólk hvorki fengið sérstaka kynningu á leiðarvísinum né framkvæmd mats á áhrifum á börn.
Innleiðing mislangt á veg komin
Mennta- og barnamálaráðuneytið sker sig úr hvað varðar innleiðingu mats á áhrifum á börn. Þar hefur verið lögð áhersla á að matið sé framkvæmt og leiðarvísirinn nýttur eftir því sem við á. Starfsfólk hefur fengið leiðbeiningar um framkvæmd matsins og sérstök áhersla hefur verið lögð á samráð við börn. Leiðbeiningar um samráð við börn eru jafnframt aðgengilegar starfsfólki á innra neti ráðuneytisins. Í svari ráðuneytisins kemur fram að reglulega sé lagt mat á áhrif á börn við undirbúning lagafrumvarpa og að almennt sé fjallað um áhrif á börn í greinargerðum með frumvörpum.
Heilbrigðisráðuneytið hefur einnig tekið skref í átt að innleiðingu matsins. Við undirbúning frumvarpa, reglugerða og stefna eru þeir hópar sem kunna að verða fyrir áhrifum af fyrirhuguðum breytingum kortlagðir. Komi í ljós að breytingar geti haft neikvæð áhrif á tiltekna hópa, þar á meðal börn, er leitað leiða til að draga úr þeim áhrifum eða koma í veg fyrir þau. Samkvæmt svari ráðuneytisins hefur leiðarvísinum verið fylgt þegar sérstakt mat á áhrifum á börn hefur verið framkvæmt.
Dómsmálaráðuneytið tekur fram að áhrif á hagsmuni barna séu höfð til hliðsjónar í störfum þess og sérstakt mat fari fram eftir atvikum. Matið er þó hvorki framkvæmt með reglubundnum hætti né sérstaklega samkvæmt leiðarvísinum.
Nokkur önnur ráðuneyti, m.a. fjármálaráðuneytið, forsætisráðuneytið og félags- og húsnæðismálaráðuneytið, taka að einhverju marki tillit til áhrifa á börn sem hluta af almennu áhrifamati við stefnumótun og undirbúning lagafrumvarpa. Þar hefur þó ekki verið innleitt sérstakt og kerfisbundið mat á áhrifum á börn.
Í atvinnuvegaráðuneytinu, innviðaráðuneytinu, umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu og menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytinu hefur matið annaðhvort ekki verið innleitt eða þekking á því er takmörkuð. Í nokkrum svörum kemur þó fram áhugi á frekari fræðslu og innleiðingu. Utanríkisráðuneytið telur starfsemi sína að mestu leyti falla utan gildissviðs mats af þessu tagi þar sem verkefni þess lúti fyrst og fremst að alþjóðlegum samskiptum.
Þörf á samræmdari innleiðingu
Niðurstöður könnunarinnar sýna að kerfisbundið mat á áhrifum á börn hefur enn ekki verið innleitt með samræmdum hætti innan Stjórnarráðsins. Þekking á leiðarvísinum er mismikil, fræðsla til starfsfólks hefur verið takmörkuð og ekki virðist alls staðar liggja skýrt fyrir hver beri ábyrgð á því að matið sé framkvæmt. Jafnframt er almennt ekki haldið sérstaklega utan um hversu oft mat á áhrifum á börn fer fram.
Niðurstöðurnar benda til þess að þörf sé á samræmdari og markvissari innleiðingu mats á áhrifum á börn þvert á Stjórnarráðið, ásamt aukinni fræðslu til starfsfólks og skýrari ábyrgð á framkvæmd þess. Með því má stuðla að kerfisbundnu mati á áhrifum ákvarðana á börn og tryggja að það sem börnum er fyrir bestu hafi raunverulegt vægi við ákvarðanatöku stjórnvalda.
Þann 15. september sl. var haldið námskeið á vegum Stjórnsýsluskóla Stjórnarráðsins um mat á áhrifum á börn og notkun leiðarvísisins sem var gefinn út 2024. Þetta er jákvætt skef en ljóst er að þörf er á markvissari aðgerðum innan Stjórnarráðsins.