20. febrúar 2008

Málþing um stjúpfjölskyldur

Málþingið „Hvernig má efla velferð stjúpfjölskyldna?" verður haldið á föstudaginn, 22. febrúar í Öskju HÍ frá kl. 14.00 - 18.00.

Málþingið „Hvernig má efla velferð stjúpfjölskyldna?" verður haldið á föstudaginn, 22. febrúar í Öskju HÍ frá kl. 14.00 - 18.00. 

Málþingið er haldið að frumkvæði Félagsráðgjafafélags Íslands og Félags stjúpfjölskyldna í samvinnu við Rannsóknarsetur í barna og fjölskylduvernd og Háskóla Íslands, Háskólann í Reykjavík, Heimili og skóla, Biskupsstofu og Samtökin 78.

Dagskrá 

13.30 - 14.00    Skráning   
14.00 - 14.10    Ég fékk stjúppabba 4 ára Júlía Sæmundsdóttir félagsráðgjafanemi, Mentor, Félagi stjúpfjölskyldna
14.15 - 14.30    Stjúptengsl – vannýtt auðlind?  Valgerður Halldórsdóttir félagsráðgjafi,  MA og formaður Félags stjúpfjölskyldna og ritstjóri www.stjuptengsl.is
14.30 -14.45     Tilfinningalegur rússíbani – faðir með börn á tveimur heimilum Páll Ólafsson félagsráðgjafi, MA og formaður Félagsráðgjafafélags Íslands
14.45-15.05      Frá reynslusögum til rannsókna – og þróast hönd í hönd Dr. Sigún Júlíusdóttir félagsráðgjafi og prófessor HÍ

20 mín hlé         

15.25 - 15.40     Stjúpfjölskyldur í tölum  Ólöf Garðarsdóttir deildarstjóri Mannfjöldadeildar Hagstofunnar
15.40 – 16.00     “Ég held að pabbi hafi verið ættleiddur “ Björk Erlendsdóttir skólafélagráðgjafi og MSW nemi
16.00 – 16.20     Heimili og skóli – Helga Margrét Guðmundóttur verkefnastjóri
                           Hinsegin stjúptengsl - Samtökin 78 - Guðbjörg Ottósdóttir félagsráðgjafi 
                           Neskirkja - Sigurður Árni Þórðarson prestur
16.20  -  17.10    Pallborð  -  Ágúst Ólafur Ágústsson  þingmaður  og framsögumenn
17.10   -17.20    Niðurstöður kynntar og málþingsslit – Álfgeir Kristjánssons, aðjúnkt Kennslu og lýðheilsudeildar HR

17.30 Léttar veitingar

Fundarstjóri: Jóhanna Rósa Arnardóttir forstöðumaður RBF

Skráning fer fram á netfangið stjuptengsl@stjuptengsl.is eða felagsradgjof@felagsradgjof.is
Vinsamlegast skráið nafn, vinnustað, greiðanda og tölvupóstfang. Þátttökugjald er 1500 kr og greiðist inn á reikning 120-26-9101 kt. 701205-2190 eða við komu.

Nánari upplýsingar veitir Valgerður Halldórsdóttir félagsráðgjafi í síma 6929101


Hafðu samband

Póstlisti


Þetta vefsvæði byggir á Eplica