4. febrúar 2009

Málþing um rafrænt einelti - 10. febrúar

Í tilefni að alþjóðlega netöryggisdeginum 10. febrúar stendur SAFT fyrir málþingi um rafrænt einelti í Skriðu, Háskóla Íslands, við Stakkahlíð, kl. 14.30 – 16.15. Á málþinginu, sem heilbrigðisráðherra setur, verður m.a. fjallað um tegundir og birtingarform rafræns eineltis, nýja rannsókn á rafrænu einelti, tæknilegt umhverfi rafræns eineltis og eftirlit foreldra, afskipti og meðferð lögreglunnar á rafrænu einelti og sál- og félagsfræðilegar hliðar eineltis.

Í tilefni að alþjóðlega netöryggisdeginum 10. febrúar stendur SAFT fyrir málþingi um rafrænt einelti í Skriðu, Háskóla Íslands, við Stakkahlíð, kl. 14.30 – 16.15.
Á málþinginu, sem heilbrigðisráðherra setur, verður m.a. fjallað um tegundir og birtingarform rafræns eineltis, nýja rannsókn á rafrænu einelti, tæknilegt umhverfi rafræns eineltis og eftirlit foreldra, afskipti og meðferð lögreglunnar á rafrænu einelti og sál- og félagsfræðilegar hliðar eineltis. Fundarstjóri verður Þorlákur Helgason, framkvæmdastjóri Olweusarverkefnisins á Íslandi. Þátttökugjald á málþing er ekkert en gestir eru vinsamlega beðnir um að tilkynna þátttöku á saft@saft.is. Boðið verður upp á veitingar. Sérstök athygli er vakin á því að málþingið verður einnig sent út á vefnum. Nánari upplýsingar á heimasíðu SAFT, www.saft.is.

SAFT, vakningarverkefni um jákvæða og örugga netnotkun barna og unglinga á netinu og tengdum miðlum, hefur á síðustu árum staðið fyrir viðburðum á alþjóðlega netöryggisdaginn. Í ár standa SAFT, Heimili og skóli, Síminn, Microsoft Íslandi, menntamálaráðuneytið og Lýðheilsustöð, sameiginlega að málþingi um rafrænt einelti þennan dag.

 


Hafðu samband

Póstlisti


Þetta vefsvæði byggir á Eplica